Hættir á Kjarnanum og verður svæðisstjóri hjá RÚV

Sunna Val­gerð­ar­dóttir blaða­kona hefur verið ráðin svæð­is­stjóri RÚVAK og mun bera ábyrgð á frétta­flutn­ingi af lands­byggð­inni í útvarpi, sjón­varpi og á vefnum.

Hættir á Kjarnanum og verður svæðisstjóri hjá RÚV

Sunna Val­gerð­ar­dóttir, blaða­kona sem starfað hefur á Kjarn­anum und­an­farið ár, hefur verið ráðin svæð­is­stjóri RÚVAK og mun bera ábyrgð á frétta­flutn­ingi af lands­byggð­inni í útvarpi, sjón­varpi og á vefnum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá RÚV. Mun Sunna leiða vinnu sem miðar að því að efla starf­semi RÚV á lands­byggð­inni, þróun og upp­bygg­ingu til fram­tíðar. „Svæð­is­stjóri stýrir starf­semi RÚV á Akureyri sem og annarri starf­semi á lands­byggð­inni.“

Sunna hættir á Kjarn­anum þar sem hún hefur sinnt frétta­skrifum og frétta– og rit­stjórn­ar­störfum um nokk­urt skeið.

„Hún var sam­skipta­sér­fræð­ingur og upp­lýs­inga­full­trúi Orku­veitu Reykja­víkur árin 2015–2016, vann sem frétta­maður á frétta­stofu RÚV á árunum 2013–2015 og sem blaða­maður á frétta­deild Frétta­blaðs­ins árin 2009–2013. Hún er með BA-gráðu í nútíma– og fjöl­miðla­fræði frá Háskól­anum á Akureyri og diplóma í marg­miðl­un­ar­hönnun frá Odense Techniske Skole.

Sunna hlaut Blaða­manna­verð­laun BÍ árið 2013 fyrir umjöllun árs­ins,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni en Sunna er ein þriggja kvenna sem ráðnar voru í stjórn­un­ar­stöður hjá RÚV í dag. 

Þóra Margrét Páls­dóttir hefur verið ráðin mannauðs­stjóri en áður hefur hún starfað sem  mannauðs­stjóri Verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands frá 2009 og hefur verið hóp­stjóri mannauðs- og sam­skipta­mála sviðs­ins frá 2013.

Þá vann hún sjálf­stætt við ráð­gjöf um mannauðs­mál og vinnu­sál­fræði, auk ýmissa verk­efna bæði hér á landi og í Berlín þar sem hún bjó lengi.

Þóra Margrét tekur við af Andreu Róberts­dóttur sem starfað hefur sem mannauðs­stjóri í miklu breyt­inga­ferli sem átt hefur sér stað síð­ustu tvö og hálft ár hjá RÚV.

Þá hefur Helga Lára Þor­stein­sóttir verið ráðin safna­stjóri RÚV. Hún hefur unnið hjá Lista­safni Reykja­víkur frá 2002 og gegnt stöðu deild­ar­stjóra safna­deildar Lista­safns­ins frá árinu 2008.

Samhliða því hefur hún haldið fyr­ir­lestra og kynn­ingar á starfi og verkum safna­deildar Lista­safns Reykja­víkur við HÍ og LÍ og var stunda­kenn­ari í safna­fræði við Félags­vís­inda­deild HÍ árin 2007–2009. Áður vann hún á Minja­safni Reykja­víkur og Sam­tíma­safn­inu í Helsinki, Kiasma. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár