Sunna hjólar í Eggert: „Ruddalegar og tilhæfulausar ásakanir“

Eggert Skúlason, rit­stjóri DV, gagn­rýnir við­tal Sunnu Val­gerð­ar­dóttur við Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur frá árinu 2014 í leið­ara í dag. Sunna svarar fyrir sig á Facebook.

Sunna hjólar í Eggert: „Ruddalegar og tilhæfulausar ásakanir“

Sunna Val­gerð­ar­dóttir, blaða­maður Kjarnans, skrifar stöðu­færslu á Facebook rétt í þessu þar sem hún svarar fyrir ásak­anir sem Eggert Skúlason, rit­stjóri DV, ber á hana í leið­ara DV í dag. Leiðari Eggerts fjallar um þá ólgu sem hefur verið innan lög­regl­unnar. Eggert segir að lekar úr lög­regl­unni hafi verið tíðir í þá fjöl­miðla sem hafa gagn­rýnt Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hve harð­ast. Máli sínu til stuðn­ings nefnir Eggert við­tal Rík­is­út­varps­ins við Sigríði Björk, sem tekið var í nóv­em­ber 2014.

„Ein­kenni­leg­asta dæmið í þessum fjöl­miðlafarsa er við­tal sem frétta­maður á Rík­is­út­varp­inu tók við Sigríði síð­asta vetur og var það við­tal hlut­drægt, ósann­gjarnt og leiða má líkur að því að við­mæl­and­inn – lög­reglu­stjór­inn – hafi ekki áttað sig á að hún væri í við­tali. Svo­leiðis gera frétta­menn ekki. Þetta við­tal fékk gamla ljós­vaka­frétta­menn til að roðna vegna vinnu­bragð­anna og að RÚV skyldi yfir höfuð senda þetta út í frétta­tíma,“ skrifar Eggert.

Sunna Val­gerð­ar­dóttir er blaða­mað­ur­inn sem tók umrætt við­tal  og svarar hún fyrir sig á Facebook-síðu sinni: „Eggert Skúlason, rit­stjóri DV, ber mig ansi þungum sökum í leið­ara sínum í dag. Leið­ar­inn ber heitið „Hún eða þeir“ og fjallar um Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur, lög­reglu­stjóra í Reykja­vík, eftir „athygl­is­vert við­tal“ í DV og þá fjöl­miðla „sem hafa gagn­rýnt lög­reglu­stjóra hvað mest“.

Sigríður Björk ánægð

Sunna segir að Sigríður Björk hafi verið ánægð með umrætt við­tal og hafi við­talið enn fremur verið lesið upp fyrir hana áður en það var sett í loftið. „Þar á hann við við­tal sem ég tók við Sigríði Björk fyrir rúmu ári, þann 22. nóv­em­ber 2014. Það sem Eggert tekur hins vegar ekki fram er að ég las upp allt hand­ritið af við­tal­inu, orð fyrir orð, spurn­ingar mínar og svör hennar, áður en ég setti það í loftið í útvarps­fréttum. Sigríður Björk var mjög sátt með við­talið.

Þegar ég náði tali af Eggerti áðan sagði hann að þetta hafi verið hans upp­lifun; að ég hafi platað Sigríði Björk í sím­tal sem ég tók upp í leyni og sett það í svo loftið án þess að hún hafi áttað sig á að hún hafi verið í við­tali. Rit­stjór­inn er að saka mig, og RÚV, um mjög óheið­ar­leg vinnu­brögð. Þegar ég benti honum á það - sagð­ist hann standa við leiðar­ann og ætl­aði ein­ungis að biðj­ast afsök­unar þegar ég bæð­ist afsök­unar á við­tal­inu. Viðtali sem við­mæl­and­inn var sáttur með - en honum fannst óboð­legt.

Auðvitað er öllum frjálst að móðg­ast fyrir hönd ann­arra, jafn­vel þeirra sem ekki hafa móðg­ast sjálfir. Það gefur fólki hins vegar ekki leyfi til þess setja fram rudda­legar og til­hæfu­lausar ásak­anir eins og Eggert gerir með því að saka frétta­menn, og þá miðla sem þeir vinna hjá, um jafn óvönduð vinnu­brögð og þessi,“ skrifar Sunna.

Eggert er ekki lengi að svara fyrir sig og tengir málið við frægt við­tal RÚV við sig er hann tók við sem rit­stjóri DV fyrir ári síðan. „Já hún er mis­mikil helg­i­slepjan og ekki sama hver á í hlut. Varst þú Sunna Val­gerð­ar­dóttir ekki að vinna hjá miðl­inum sem spurði mig hvort ég væri fram­sókn­ar­maður, þegar ég tók við starfi sem rit­stjóri á DV. Það eru nátt­úru­lega ekki dylgjur. Mín upp­lifun af þessu við­tali sem hlust­andi á útvarp, var ein­föld. Óboðlegt,“ svarar Eggert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár