Telja að formaður hefði átt að víkja vegna tengsla við dæmdan kynferðisbrotamann

Félags­mála­nefnd Ísa­fjarð­ar­bæjar mælti gegn styrk­veit­ingu til Sólstafa, systra­sam­taka Stíga­móta. Fyrr­ver­andi eig­in­maður Gunn­hildar Elí­as­dóttur, for­manns nefnd­ar­innar, er dæmdur kyn­ferð­is­brota­maður. Starfs­menn Sólstafa telja að hún hefði átt að víkja við afgreiðslu umsókn­ar­innar. „Óþverra­legt að tengja þessi tvö mál saman,“ segir Gunn­hildur.

Telja að formaður hefði átt að víkja vegna tengsla við dæmdan kynferðisbrotamann
Þingeyri

Starfs­menn Sólstafa, syst­ur­sam­taka Stíga­móta á Vest­fjörðum, telja að Gunn­hildur Björk Elí­as­dóttir, for­maður félags­mála­nefndar Ísa­fjarð­ar­bæjar hefði átt að víkja af fundum þegar styrk­um­sókn sam­tak­anna var til umfjöll­unar. Nefndin mælti gegn því að sam­tökin fengju umbeð­inn styrk. Fyrr­ver­andi eig­in­maður Gunn­hildar, Líni Hannes Sig­urðs­son frá Þingeyri, var nýlega dæmdur fyrir fyrir vörslu á miklu magni barnakláms og árið 2013 kærðu sex konur hann fyrir kyn­ferð­is­brot. Kærunum var ýmist vísað frá eða þær felldar niður. Í grein sem birt­ist á Knuz.is í morgun segir að skipun Gunn­hildar í emb­ætti for­manns félags­mála­nefndar hafi sætt gagn­rýni á sínum tíma, „ekki síst í ljósi þess að hún hafði gengið hart fram gegn meintum brota­þolum eig­in­manns­ins“. Gunn­hildur segir óþverra­legt að tengja þessi tvö mál saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár