Stundin valin besti vefmiðillinn

Samtök vef­iðn­að­ar­ins hafa veitt Stund­inni verð­laun sem vef­mið­ill árs­ins 2015. „Hefur haft mikil áhrif á aðra vef­miðla og þjóð­fé­lags­um­ræðu,“ segir í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar.

Stundin valin besti vefmiðillinn

Stundin.is var val­inn vef­mið­ill árs­ins á Íslensku vef­verð­laun­unum 2015, sem afhend voru á föstu­dags­kvöld við hátíð­lega athöfn. 

Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar kom fram að vef­mið­il­inn hefði haft áhrif á aðra vef­miðla og þjóð­fé­lags­um­ræðu:

„Sá vefur sem varð fyrir val­inu sem besti vef­mið­ill­inn kom fram á sjón­ar­sviðið með ferskum blæ og hefur haft mikil áhrif á aðra vef­miðla og þjóð­fé­lags­um­ræðu. Efnið er fjöl­breytt og for­vitni­legt og sett fram á læsi­legan hátt. Upp­setn­ingin og notkun á „responsive“-vef­tækni er vel hugsuð og útfærslan er áhuga­verð. Upp­bygg­ing og flæði á vef­miðl­inum er gott og skipu­lag hans skýrt.  Þessir eig­in­leikar gera það að verkum að vef­mið­ill­inn er auð­les­inn og mjög þægi­legur í notkun.“

Íslensku vef­verð­launin hafa verið haldin árlega frá árinu 2000 og er mark­mið þeirra að „verð­launa þá sem vinna góða vinnu innan vef­iðn­að­ar­ins og upp­hefja þau góðu verk­efni sem eru unnin“.

Besti íslenski vef­ur­inn í öllum flokkum var val­inn miða­sölu­vef­ur­inn tix.is.

Verðlaunahafar í öllum flokkum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár