Stundin fjölgar útgáfu­­dögum

Frá og með nóv­em­ber­mán­uði mun prentút­gáfa Stund­ar­innar koma út tvisvar í mán­uði í stað einu sinni.

Stundin fjölgar útgáfu­­dögum

Frá og með nóv­em­ber­mán­uði mun prentút­gáfa Stund­ar­innar koma út tvisvar í mán­uði í stað einu sinni. Ákvörðun um aukna útgáfu­tíðni tekur mið af spurn­inga­könnun meðal áskrif­enda sem send var með tölvu­pósti í lok októ­ber. Um 1.500 áskrif­endur svör­uðu könn­un­inni og töldu 86 pró­sent svar­enda að hæfi­legt væri að útgáfu­dögum Stund­ar­innar yrði fjölgað. 
Stundin heldur enn úti dag­leg­um frétta­flutn­ingi á frétta­vef Stundar­innar, sem er að hluta lok­aður öðrum en áskrif­endum. 

Samhliða tvö­földun útgáfu­daga hækkar verð á prentá­skrift, sem inni­felur vef­á­skrift, úr 950 kr. í 1.350 kr. á mán­uði. Þá fer vef­á­skrift úr 750 kr. í 950 kr. á mán­uði.

Einnig kom fram í áskrif­enda­könn­un­inni að rúm­lega 90 pró­sent svar­enda kváðu lík­legt að þeir myndu mæla með Stund­inni við ætt­ingja eða vini. Um 80 pró­sent svar­enda töldu að Stundin væri betri en með­al­tölu­blað ann­arra prent­miðla, en 15 pró­sent að þau væru svipuð.
Þegar nánar var spurt út í ánægju eða óánægju með efni blaðs­ins sögð­ust 94 pró­sent svar­enda telja að vel tæk­ist til með rann­sóknar­blaða­mennsku í Stund­inni. 

Þegar opinna spurn­inga var spurt um hvaða efni við­kom­andi þætti áhuga­verð­ast voru svörin fjöl­breyti­leg. „Mér finn­ast rann­sóknar­grein­arnar alltaf áhuga­verðastar. Og pistl­arnir,“ sagði einn svar­andi. „Mik­il­vægt að halda málum sem varða hags­muni almenn­ings á lofti, að mik­il­væg mál­efni verði ekki svæfð. Haldið vöku ykkar og verið umfram allt mál­efna­leg og rök­vís,“ sagði annar áskrif­andi.

„Blaðið er gott í heild­ina, mætti skipta því í tvö blöð, þá hálfs­mána­ð­ar­lega. Þetta er svo mikið efni, takk,“ sagði enn annar.

Margar gagn­legar ábend­ingar, gagn­rýni sem hvatn­ingar, bár­ust í opnum spurn­ingum í könn­un­inni sem verða nýttar af rit­stjórn til áfram­­­hald­andi þró­unar á prent- og vef­út­gáfu Stund­ar­innar. „Þið eruð mikið með nei­kvæðar fréttir og prent­aða útgáfan er mjög stór þannig að maður skoðar aldrei allt blaðið,“ kom fram í máli eins. „Haldið áfram á þess­ari braut það eru ekki margir óháðir frétta­miðlar á Íslandi í dag,“ sagði annar. „Haldið áfram gagn­rýn­inni umræðu um spill­ingu og vald­hroka,“ sagði sá þriðji. Og enn annar: „Ef þið hættið að verða óháður mið­ill segi ég áskrift­inni upp á stund­inni :)“

Rit­stjórn Stund­ar­innar þakkar gagn­leg svör í spurn­inga­könnun til áskrif­enda. Könnunin verður end­ur­tekin á næstu miss­erum til hlið­sjónar við gæða­stjórnun og fram­þróun mið­ils­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár