Stóðu af sér harða gagnrýni og ótal tilraunir til þöggunar

Jóhann Páll og Jón Bjarki verð­laun­aðir sem blaða­menn árs­ins um helg­ina. Mynd árs­ins átti Sig­tryggur Ari Jóhanns­son en hún tengd­ist einnig umfjöllun Jóns Bjarka um hæl­is­leit­endur.

Stóðu af sér harða gagnrýni og ótal tilraunir til þöggunar

Blaða­manna­verð­laun Blaða­manna­fé­lags­ins voru afhent um helg­ina. Þar hlutu þeir Jóhann Páll Jóhanns­son og Jón Bjarki Magn­ús­son blaða­manna­verð­laun árs­ins fyrir umfjöllun um leka­málið. Aðrir verð­launa­hafar voru Helgi Seljan fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins, rit­stjórn mbl.is fyrir umfjöllun árs­ins og Ólöf Skafta­dóttir sem átti við­tal árs­ins.

Verðlaunahafarnir
Verð­launa­haf­arnir

Minnir á mikilvægi gagnrýnnar blaðamennsku

Umfjöllun um leka­málið færði þeim Jóhanni Páli og Jóni Bjarka verð­laun sem blaða­menn árs­ins. Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar var talað um að þeir hefðu sýnt ein­stakt þol­gæði við að upp­lýsa allar hliðar leka­máls­ins og fylgt því vel eftir, þrátt fyrir mót­læti og and­stöðu ráð­herra, sem end­aði með afsögn hans.

Leka­málið hófst árið 2013 þegar trún­að­ar­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­anda var lekið til fjöl­miðla. Það stóð allt árið 2014 og náði hámæli þegar í ljós kom að lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hrökkl­að­ist úr emb­ætti vegna afskipta ráð­herr­ans af lög­reglu­rann­sókn­inni, umboðs­maður Alþingis hóf skoðun á mál­inu, ráðu­neyt­is­skipan var breytt, aðstoð­ar­maður ráð­herra var dæmdur fyrir lek­ann og ráð­herr­ann sagði af sér.

Enn teygir leka­málið anga sína út í sam­fé­lagið með ýmsum hætti, en síð­ast­lið­inn föstu­dag birt­ist úrskurður Per­sónu­verndar um að núver­andi lög­reglu­stjóri á höfðu­borg­ar­svæð­inu, þáver­andi lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefði brotið í bága við lög um per­sónu­vernd. Þá fjall­aði for­síðu­frétt fyrsta tölu­blaðs Stund­ar­innar um valda­tafl innan lög­regl­unnar. Þar kom fram að þeir sem komu að rann­sókn leka­máls­ins hefðu orðið undir. 

„Þrátt fyrir harða gagn­rýni og ótal til­raunir til þögg­unar stóðu blaða­menn­irnir í ístað­inu. Þolgæði þeirra varð til þess að ljósi var varpað á það sem raun­veru­lega gerð­ist á bak­við tjöldin. Það minnir á mik­il­vægi gagn­rýn­innar blaða­mennsku og að trún­aður blaða­manna sé fyrst og síð­ast við almenn­ing í land­inu og engan annan,“ segir í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar.

Aðrir til­nefndir í sama flokki voru Magnús Hall­dórs­son, Ægir Þór Eysteins­son og Þórður Snær Júl­í­us­son  Kjarn­anum, fyrir umfjöllun um sölu Lands­bank­ans á hlut í Borgun, og Viktoría Her­manns­dóttir, Frétta­blað­inu, fyrir umfjöllun um inn­flytj­endur og áhrifa­rík við­töl.

Mynd ársins og fréttamynd ársins
Mynd árs­ins og frétta­mynd árs­ins

Yfirleitt sendir aftur í gin ljónsins

Sama dag voru veitt verð­laun fyrir bestu myndir árs­ins 2014. Verðlaun voru veitt í sjö flokkum, en mynd árs­ins tengd­ist einnig umfjöllun Jóns Bjarka um hæl­is­leit­endur. Myndina átti Sig­tryggur Ari Jóhanns­son, en hún var af Ghasem Mohamadi, tví­tugum hæl­is­leit­anda frá Afganistan og sýndi hann veikan í rúmi sínu eftir mót­mæla­svelti vegna seina­gangs Útlend­inga­stofn­unnar á afgreiðslu hæl­is­um­sóknar.

Myndin vann til tveggja verð­launa, var bæði mynd árs­ins og frétta­mynd árs­ins. „Þessi mynd er til­komin vegna þrot­lausrar vinnu Jóns Bjarka blaða­manns og brenn­andi áhuga hans á mál­efnum hæl­is­leit­enda,“ segir Sig­tryggur Ari. „Ég hafði átt langt og gott sam­starf við Jón Bjarka og oft­sinnis farið með honum að skoða aðstæður hæl­is­leit­enda og hitt þá við mis­jafnar aðstæður, tekið við þá við­töl og myndir af þeim. Þessi mynd var tekin í miðju því ferli og það var ekk­ert sem benti til þess þegar ég tók þessa mynd að hún væri annað en enn eitt skrefið. Þegar ég fór að horfa á hana seinna, kom­inn aftur í hús, sá ég að þetta var óvenju­leg mynd. Bæði vegna þess hve veikur Ghasem var orð­inn vegna mót­mæla­sveltis og eins hversu mikla ein­beit­ingu hann hafði samt á aðstæðum sínum.

Að því sögðu voru aðstæður á vett­vangi algjör­lega sam­bæri­legar við aðstæður ann­ara sem sækja um póli­tískt hæli á Íslandi. Þeir búa yfir­leitt úti á Suð­ur­nesjum á Fit­hostel eða í leigu­í­búðum hér og þar um bæinn þar sem þeir búa með öðrum hæl­is­leit­endum. Oft eiga þeir ekk­ert annað sam­eig­in­legt en að vera fastir hér í bið­inni eftir svari frá Útlend­inga­stofnun og yfir­leitt eru þeir sendir aftur í gin ljóns­ins, til baka þaðan sem þeir komu.“

Sig­tryggur Ari og Jón Bjarki hittu Ghasem nokkrum sinnum. Einu sinni fylgdu þeir honum í ráðu­neytið þar sem hann vildi fá að ræða stöðu sína, en þegar hann fór á fætur blasti við hversu slæmt ástand hans var orðið. „Hann klæddi sig í föt og fötin hans voru orðin allt of stór á hans og héngu utan á honum.“

Ghasem fékk að lokum stöðu flóttam­ans á Íslandi, tveimur árum eftir að Útlend­inga­stofnun hafði áður hafnað þeirri beiðni á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar.

Daglegt líf ársins
Daglegt líf árs­ins

Portrett ársins
Portrett árs­ins

Sérhagsmunir bænda varðir

Helgi seljan vann í flokknum rann­sókn­ar­blaða­mennska fyrir umfjöllun um MS og upp­runa vöru. Í umfjöllun sinni ljóstr­aði Helgi því upp hvernig MS, sem og önnur fyr­ir­tæki, leyna almenn­ingi því fyrir almenn­ingi þegar þau blanda erlendri vöru saman við íslenska. Einnig benti hann á að emb­ætt­is­maður í ráðu­neyti land­bún­aðar hefur setið beggja vegna borðs­ins í mörgum málum sem snerta sam­keppni og land­búnað. „Í umfjöllun Helga Seljan um upp­runa vöru og stöðu búvöru­mála í land­inu sýndi hann fram á hvernig sér­hags­munir bænda, MS og inn­lendra kjöt­vinnslna eru varðir á kostnað neyt­enda,“ segir í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar. „Helgi rann­sak­aði málið frá mörgum hliðum og dró fram í dags­ljósið að emb­ætt­is­maður land­bún­að­ar­mála hefði setið beggja vegna borðs og tæki ákvarð­anir sem túlka megi í hag fyrrum vinnu­veit­enda og þess­ara sér­hags­muna.“

Aðrir til­nefndir í sama flokki voru Garðar Örn Úlf­ars­son Frétta­blað­inu og Þorbjörn Þórð­ars­son Stöð 2, fyrir umfjöllun um flug­slysið við Akureyri. Þá var Hrund Þórs­dóttir, Stöð 2 til­nefnd fyrir umfjöllun um lyfja­mis­tök, en hún kaf­aði ofan í and­lát eldri manns sem lést rúmri viku eftir að honum var gef­inn rangur lyfja­skammtur á heil­brigð­is­stofnun.  

Tímaritamynd ársins
Tíma­rita­mynd árs­ins

Notuðu dróna úr lofti

Í flokknum umfjöllun árs­ins vann rist­jórn mbl.is til verð­launa fyrir umfjöllun um stór­brun­ann í Skeif­unni. „Þegar stór­bruni varð í Skeif­unni síð­asta sumar sýndi rit­stjórn mbl.is vel hvernig nýta má alla helstu kosti nets­ins og tækn­innar til að færa les­endum skýra mynd af því sem var að ger­ast með hnit­mið­uðum texta, myndum og mynd­skeiðum frá dróna úr lofti,“ sagði í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar. „Nið­ur­staðan var heild­stæð og ítar­leg umfjöllun sem minnti ræki­lega á hvað netið er öfl­ugur frétta­mið­ill.“

Aðrir til­nefndir voru Sigurður Mikael Jónsson fyrir umfjöllun um neyt­enda­mál í DV og Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, Stund­inni, fyrir umfjöllun um Alzheimer og heila­bilun sem birt­ist í DV.

Íþróttamynd ársins
Íþrótta­mynd árs­ins

Barátta tvíburabræðra við geðræna sjúkdóma

Viðtal árs­ins átti Ólöf Skapta­dóttir við tví­bura­bræð­urna Kára og Halldór Auðar- og Svans­syni. Í við­tal­inu lýsa bræð­urnir reynslu sinni af geð­sjúk­dómum af mik­illi hrein­skilni, ann­ars vegar tólf ára bar­áttu Kára við að lifa við geð­klofa og hins vegar geð­rofi Halldórs í kjöl­far kanna­bis­neyslu. „Með þessu við­tali nær Ólöf að draga fram mik­il­vægar raddir þeirra bræðra til að draga úr for­dómum gegn geð­sjúk­dómum sem best næst fram með því að tala við þá sem sjálfir hafa lifað með sjúk­dómnum. For­dóma­leysi Ólafar og virð­ing gagn­vart við­fangs­efn­inu skín í gegn um text­ann og  lýsir það sér ekki síst í létt­leik­anum sem ein­kennir við­talið, en nær jafn­framt að lýsa erf­ið­leikum við að hætta á geð­lyfjum, að takast á við breyttar aðstæður sem fylgja sjúk­dómnum og breyttri lífs­sýn þeirra bræðra. Ekki er hvað síst óvenju­legt að lesa jafn hrein­skilið við­tal við stjórn­mála­mann um per­sónu­leg mál­efni og þetta við­tal er,“ segir í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar.

Aðrir til­nefndir voru Indíana Hreins­dóttir, DV, fyrir við­tal við Stefán Hilm­ars­son og Júlía Margrét Alex­and­ers­dóttir, Morg­un­blað­inu, fyrir við­tal við Þorstein J. Vil­hjálms­son.

Umhverfismynd ársins
Umhverf­is­mynd árs­ins

Vestfjarðardulúð

Aðrar verð­launa­myndir áttu Ómar Ósk­ars­son fyrir mynd í flokki dag­legs lífs, Vilhelm Gunn­ars­son fyrir íþrótta­mynd árs­ins, Rut Sig­urð­ar­dóttir átti portrait mynd árs­ins, Gígja D. Ein­ars­dóttir átti tíma­rita­mynd árs­ins og Heiða Helga­dóttir átti verð­launa­mynd í flokki umhverf­is­mynda ásamt því að hafa einnig myndað myndröð árs­ins 2014.

Mynda­röðin var tekin bak­sviðs á Reykja­vík Fashion Festival. Þar fylgd­ist Heiða með hama­gang­inum frá klukkan níu að morgni og fram á kvöld og reyndi að teygja sig undir yfir­borðið, horfa fram hjá tísk­unni og ná kjarn­anum, fólk­inu. „Ég vildi hafa þetta ein­lægt og mistískt. Kannski lang­aði mig bara að sjá róm­an­tík­ina í þessu,“ segir Heiða.

Heiða átti jafn­framt umhverf­is­mynd árs­ins sem var af fjalli á sunn­an­verðum Vest­fjörðum. „Myndin varð til í júní í fyrra þegar ég var á leið að Látra­bjargi. Á leið­inni þangað varð mér star­sýnt á fjallið þegar ég sá hvernig fal­leg þokan lædd­ist að og lak niður fjallið. Mér fannst þetta mjög róm­an­tískt og mistískt. Vest­fjarða­dulúðin eins og hún ger­ist best.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár