Standast ekki lög um dýravernd

Ný lög um dýra­vernd kalla á nýjar reglu­gerðir í eggja­bú­skap

Standast ekki lög um dýravernd

Síðustu ár hefur orðið mikil vit­und­ar­vakn­ing meðal almenn­ings varð­andi heilsu og holl­ustu. Fólk á öllum aldri hleypur, skokkar, gengur á fjöll og lyftir lóðum. Samhliða þessu hefur fólk beint sjónum sínum og athygli að matar­æði því það skiptir ekki minna máli en hreyf­ingin sjálf. Fyr­ir­tæki hafa reynt að svara þess­ari bylgju með því að setja á markað prótein­ríkar vörur, fjöl­korna­brauð, brauð úr spelti og svo fram­vegis.

En neyt­endur vilja meira en bara hollar vörur. Þeir vilja líka vita hvernig mat­vælin sem þeir kaupa eru fram­leidd. Aðbún­aður dýr­anna er kom­inn í brenni­depil. Þetta á ekki síst við um svína­rækt og kjúklinga­rækt en þessar tvær greinar eiga lítið sam­eig­in­legt með hug­mynd­inni um land­búnað og orðið „verk­smiðju­bú­skapur“ nær betur utan um stað­reyndir máls­ins. Aðbún­aður slát­ur­dýra er oft í deigl­unni á hinum Norð­ur­lönd­unum og ekki er langt síðan sænska þingið bætti stór­lega við reglur ESB í svína­rækt. Eggja­fram­leiðsla er sömu­leiðis oft og tíðum í fréttum á Norð­ur­löndum og ekki síst vegna skelfi­legra aðstæðna sem hænur á verk­smiðju­búum búa við.

Neyt­endur krefj­ast þess að fá að velja á milli þess að kaupa verk­smiðju­egg og egg þar sem aðbún­aður hæn­anna er betri. Mark­að­ur­inn svar­aði með alls­konar stöðlum. Þeir staðlar kveða á um aðbúnað hæn­anna og eru allt frá því að hæn­urnar eru í búrum en hafa meira pláss en reglu­gerðin krefst og upp í að hænan vappar frjáls út á túni og undir ströngu eft­ir­liti rogg­ins hana sem passar upp á sitt. En er allt sem sýn­ist í þessum efnum?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár