Spyr um starfslokasamninga RÚV

Karl Garð­ars­son vill vita hvernig starfs­loka­greiðslur RÚV skipt­ast niður á ein­staka starfs­menn. DV var nýverið synjað um þessar sömu upp­lýs­ingar.

Spyr um starfslokasamninga RÚV

Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur lagt fram fyr­ir­spurn á Alþingi til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um starfs­loka­samn­inga á RÚV. Vill hann meðal ann­ars fá að vita hversu háar starfs­loka­greiðslur RÚV voru á rekstr­ar­ár­unum 2013 til 2015 í krónum og hvernig greiðsl­urnar skipt­ast á starfs­menn. DV bað um þessar sömu upp­lýs­ingar í jan­úar á síð­asta ári en RÚV hafn­aði þeirri kröfu. DV kærði þá ákvörðun til úrskurð­ar­nefndar upp­lýs­inga­mála og í jan­úar síð­ast­liðnum stað­festi nefndin að RÚV þyrfti ekki að afhenda starfs­loka­samn­ing­ana. Úrskurð­ar­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að aðeins útvarps­stjóri telj­ist til æðstu stjórn­enda og því eigi upp­lýs­inga­lögin aðeins við um hann. 

Svona hljóðar fyrirspurn Karls Garðarssonar til mennta- og menningarmálaráðherra:

1. Hversu háar voru starfs­loka­greiðslur RÚV á rekstr­ar­ár­unum 2013–2015 í krónum, hversu margir starfs­menn fengu starfs­loka­samn­inga og hversu háar voru hæstu og lægstu greiðslur?

2. Hvernig skipt­ast greiðsl­urnar á starfs­menn, þ.e. hverjir fengu greiðslur og hversu háar?

3. Hversu margir þeirra sem hættu störfum á tíma­bil­inu hafa verið end­ur­ráðnir, hversu margir þeirra sem hafa verið end­ur­ráðnir fengu starfs­loka­samn­inga, hverjir eru það og frá hvaða tíma voru þeir end­ur­ráðnir? 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár