Spjallar um verðtrygginguna á Bylgjunni en vill ekki sérstaka umræðu um málið á Alþingi

Afnám verð­trygg­ingar var eitt af kosn­inga­málum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sig­mundur Davíð skip­aði nefnd til að fylgja því eftir. Hann vill ekki taka þátt í sér­stakri umræðu um verð­trygg­ing­una á Alþingi og segir málið heyra undir fjár­mála­ráð­herra.

Spjallar um verðtrygginguna á Bylgjunni en vill ekki sérstaka umræðu um málið á Alþingi

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, neitar að taka þátt í sér­stakri umræðu um verð­trygg­ing­una á Alþingi. Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur ítrekað farið fram á að slík umræða eigi sér stað, en Sig­mundur er mót­fall­inn því. 

Stjórn­ar­and­staðan lagði fram til­lögu að dag­skrár­breyt­ingu á Alþingi í morgun í því skyni að koma umræð­unni að, en til­lagan var felld. Hins vegar mætti for­sæt­is­ráð­herra í við­tal við útvarps­menn­ina Heimi Karlsson og Gunnlaug Helgason í Bítinu á Bylgj­unni morgun og spjall­aði meðal ann­ars við þá um verð­trygg­ing­una. 

„Ég vil ræða verð­trygg­ing­una 
​við hvern sem er“

„Ég vil ræða verð­trygg­ing­una við hvern sem er,“ sagði hann í við­tal­inu og bætti því við að hann vildi gjarnan svara munn­legum og skrif­legum fyr­ir­spurnum um málið. „En þarna er hún að biðja um að þetta mál verði tekið upp í sér­stökum lið sem kall­ast sér­stakar umræður og sá liður er til þess ætl­aður að sá ráð­herra sem er að vinna í ákveðnu máli eða fer með ákveðið mál geti komið og greint þing­inu frá stöðu máls­ins. Þess vegna er það ráð­herra sem fer með við­kom­andi mál sem gerir það.“ 

Kosningamál Sigmundar

Afnám verð­trygg­ing­ar­innar var eitt helsta kosn­inga­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins í síð­ustu þing­kosn­ingum. For­sæt­is­ráð­herra skip­aði sjálfur sér­fræð­inga­hóp um afnám verð­trygg­ingar á nýjum neyt­enda­lán­um­þann 16. ágúst 2013 og skil­aði hóp­ur­inn skýrslu í fyrra sem lögð hefur verið til grund­vallar vinn­unni.

Fjallað er um sér­stakar umræður í 60. gr. þing­skap­ar­laga, en sam­kvæmt henni getur for­seti Alþingis „sett á dag­skrá þing­fundar sér­staka umræðu þar sem þing­menn geta fengið tekið fyrir mál hvort heldur er í formi yfir­lýs­ingar eða fyr­ir­spurnar til ráð­herra. Þing­maður skal afhenda for­seta skrif­lega beiðni hér um. Við slíka umræðu skal ráð­herra vera til and­svara.“ 

Sig­mundur benti á það í umræð­unum á Bylgj­unni að á síð­asta kjör­tíma­bili hefði hann sjálfur eflaust reynt að „fá for­sæt­is­ráð­herra til að tala um mál ann­arra ráð­herra”, en þegar ekki hefði verið brugð­ist við því hafi hann látið gott heita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

26 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár