Slökktu á dýrustu ljósasýningu landsins í Leifsstöð

Dul­ar­fullar trufl­anir í TETRA-fjar­skipta­kerfi Kefla­vík­ur­flug­vallar hafa verið vanda­mál í nokkra mán­uði. Ein­hverjum datt í hug að slökkva á nýrri rúm­lega 200 millj­óna króna LED-ljósa­sýn­ingu sem var sett upp á þessu ári og trufl­an­irnar hættu.

Slökktu á dýrustu ljósasýningu landsins í Leifsstöð

Straum­ur­inn var tek­inn af einni glæsi­leg­ustu og jafn­framt dýr­ustu ljósa­sýn­ingu lands­ins í Leifs­stöð nú á dög­unum. Ljósin eru LED-díóður en miklar og hvim­leiðar trufl­anir í TETRA-fjar­skipta­kerfi við­bragðs­að­ila á Kefla­vík­ur­flug­velli hófust á sama tíma og ljósa­kerfið, sem kost­aði rúmar 200 millj­ónir króna, var tekið í notkun.

„Því þykir ljóst að ljósa­kerfið er eitt það stærsta og jafn­framt dýrasta sem hefur nokkurn tím­ann verið sett upp hér á landi.“

Stundin greindi frá ljósa­sýn­ing­unni í Leifs­stöð í mars á þessu ári en sam­kvæmt Guðna Sig­urðs­syni, upp­lýs­inga­full­trúa ISAVIA, var nýja lýs­ingin til komin vegna þess að sú sem fyrir var var komin til ára sinna: „...auk þess sem breyta þurfti lýs­ingu eftir að versl­anir, þjón­usta og örygg­is­leit færð­ist til en mis­mun­andi lýs­ing­ar­þarfir eru á þessum stöðum og mik­il­vægt að tryggja vinnu­vernd­ar­sjón­ar­mið við lýs­ingu á svo stórum vinnu­stað.“

Stærsta og dýrasta ljósakerfi landsins

Engu var til sparað en breyt­ing­arnar kost­uðu 190 millj­ónir króna og fór Isavia með verkið í útboð í gegnum Rík­is­s­kaup. Þrír aðilar skil­uðu inn til­boði. Lægst­bjóð­andi var Raf­miðlun með tæpar 190 millj­ónir sem er kostn­aður við efni, vinnu og upp­setn­ingu. Aðrir bjóð­endur voru Fagtækni og Bergraf. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar reynd­ist kostn­að­ur­inn þó tölu­vert meiri þegar uppi var staðið. Því þykir ljóst að ljósa­kerfið er eitt það stærsta og jafn­framt dýrasta sem hefur nokkurn tím­ann verið sett upp hér á landi.

Á svip­uðum tíma og kerfið var sett upp fór að bera á miklum trufl­unum í TETRA-fjar­skipta­kerfi Kefla­vík­ur­flug­vallar en kerfið nota við­bragðs­að­ilar á borð við lög­reglu, toll­gæslu, slökkvi­lið og sjúkra­flutn­inga­menn. TETRA er í raun staf­rænt tal­stöðvakerfi sem einnig má nota sem síma og til gagna­flutn­inga en sendar í kerf­inu draga um 60 kíló­metra í sjón­línu. Notendur þess á lands­vísu eru meðal ann­ars Land­helg­is­gæslan, fang­elsi lands­ins, björg­un­ar­sveitir, Almanna­varnir auk allra lög­reglu­emb­ætta og slökkvi­liða.

Málið í rannsókn erlendis

Mikið kapp var lagt á að finna rót umræddra trufl­ana en ekk­ert gekk. Rann­sóknin stóð í nokkrar vikur. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var það síðan starfs­maður flug­vall­ar­ins sem datt í hug að slökkva á LED-lýs­ing­unni, sem býður meðal ann­ars upp á sér­staka „norð­ur­ljósa­still­ingu“, og viti menn; trufl­an­irnar hættu.

Stundin hafði sam­band við Raf­miðlun, fyr­ir­tækið sem bauð lægst í verkið, keypti bún­að­inn og setti hann upp í Leifs­stöð. Til svara var Vigfús Pét­urs­son, eða Fúsi, einn helsti LED-sér­fræð­ingur fyr­ir­tæk­is­ins en hann sagði þetta mál í rann­sókn hjá fram­leið­endum ljósanna erlendis. Hann segir að kerfið hafi verið keypt í gegnum Raf­miðlun.

„Allt stýri­kerfið er í raun hannað í útlöndum. Þessi bún­aður er sá sami og var fyrir skrif­aður í verkið sem við síðan buðum í. Þetta er nákvæm­lega eins og hönn­uð­ur­inn vildi gera þetta.“

„Stundin sendi fyr­ir­spurn vegna máls­ins til ISAVIA en í svari þeirra er þver­tekið fyrir að LED-lýs­ingin hafi haft áhrif á TETRA-kerfið.“

En svona almennt séð Fúsi, geta LED-ljós truflað svona útvarps­bylgjur eða senda? Nú hef ég heyrt frá einum sem setti upp LED-ljós heima hjá sér og allt í einu hætti útvarpið að virka. Getur það sem sagt gerst?

„Þetta ódýra LED eins og menn kalla það, það í raun­inni getur verið meira trufl­ana­gjarnt en þetta frá stóru fram­leið­end­unum. Frá þessum flott­ari fram­leið­endum er spes bún­aður sem á að koma í veg fyrir allt sem heitir vesen, allar trufl­anir og allt slíkt.“

ISAVIA segir bilanir ekki vegna LED-lýsingar

Stundin ræddi við annan LED-sér­fræð­ing hér á landi en hann sagði lík­legt að málið snérist um svo­kall­aða EMC-filt­era en þeir gera það að verkum að þeir sía út sjón­varps- og útvarps­bylgjur sem LED-ljós geta sent frá sér.

Stundin sendi fyr­ir­spurn vegna máls­ins á ISAVIA en í svari þeirra er þver­tekið fyrir að LED-lýs­ingin hafi haft áhrif á TETRA-kerfið.

„Þær trufl­anir í TETRA-tal­stöðv­ar­kerfi sem verið hafa eru vegna bil­unar í bún­að­inum sjálfum en ekki vegna LED-lýs­ingar í flug­stöð­inni. Búið er að laga þær bil­anir og virkar TETRA-kerfið nú eins og skyldi. LED-lýs­ingin í flug­stöð­inni er í eðli­legri notkun, en þar sem nú er hásumar þá er ekki þörf á að hafa öll ljósin kveikt og því er oft ein­ungis hluti ljósanna í notkun,“ segir í yfir­lýs­ingu frá ISAVIA.

Sagði ISAVIA ósatt?

Yfir­lýs­ingin er á skjön við bæði heim­ildir Stund­ar­innar og þær upp­lýs­ingar sem feng­ist hafa frá Raf­miðlun, fyr­ir­tæk­inu sem keypti og setti upp lýs­ing­una í Leifs­stöð. Þaðan, eins og áður segir, bár­ust þær upp­lýs­ingar að málið væri í rann­sókn hjá fram­leið­endum ljósanna erlendis. Hún er reyndar á skjön við upp­lýs­ingar frá öðrum opin­berum aðila líkt og blaðið komst að.

Stundin hafði nefni­lega sam­band við Neyð­ar­lín­una ohf. en hún á og sér um rekstur TETRA-fjar­skipta­kerf­is­ins hér á landi. Ingólfur Har­alds­son hjá Neyð­ar­lín­unni segir að þeir hafi grunað það strax að umræddar trufl­anir kæmu frá LED-lýs­ing­unni. Þá segir Ingólfur að umræddar trufl­anir hafi byrjað á svip­uðum tíma og ISAVIA var að taka LED-lýs­ing­una í notkun en það hafi ekki enn verið stað­fest.

„Við brugð­umst við og settum upp annan sendi. Þá höfum við gert við bilun sem var þarna í bún­aði sem að ISAVIA eða ein­hver setti upp. Ég held að það sé verið að vinna áfram í því að laga þá bilun, það tekur svo­lít­inn tíma að koma fyrir þá bilun.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár