Skýrsla Hannesar verður birt rúmum tveimur árum á eftir áætlun

Skýrsla Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar, um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins, verður birt þann 8. októ­ber, á níu ára afmæli þess að bresk stjórn­völd beittu hryðju­verka­lögum gegn Íslandi. Hannes hefur brugð­ist illa við frétta­flutn­ingi um tafir á birt­ingu skýrsl­unnar.

Skýrsla Hannesar verður birt rúmum tveimur árum á eftir áætlun
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son Er að leggja loka­hönd á skýrsl­una sem birt verður þann 9. októ­ber.

Skýrsla Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar, pró­fess­ors við Háskóla Íslands, um erlenda áhrifa­þætti á banka­hrunið, verður birt í haust en áætluð verk­lok voru þann 1. sept­em­ber 2015. „Hannes er að leggja loka­hönd á skýrsl­una núna og hún verður birt þann 8. októ­ber á níu ára afmæli þess að bresk stjórn­völd beittu hryð­verka­lögum gegn Íslandi,“ segir Gylfi Ólafsson, aðstoð­ar­maður Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Hannes átti frum­kvæði að vinnslu skýrsl­unnar og fékk til verks­ins 10 millj­ónir króna frá fjár­mála­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar. Þá hefur hann brugð­ist illa við frétta­flutn­ingi um að birt­ing skýrsl­unnar hafi taf­ist.

„Frétta­stofa RÚV flutti í gær sér­staka frétt um það þjóð­ar­böl, að lík­lega komi skýrsla mín ekki út fyrir næstu ára­mót. Töfin á minni skýrslu er hins vegar vegna þess tvenns, að ég er líka að vinna að lengri skýrslu (þótt samn­ing­ur­inn við fjár­mála­ráðu­neytið hafi ekki kraf­ist þess) og að erfitt hefur verið að fá við­töl við einn eða tvo menn, sem þó er nauð­syn­legt að tala við. Ég hefði ella getað skilað styttri skýrsl­unni fyrir löngu,“ sagði Hannes í færslu á Facebook þann 21. októ­ber 2015. Þá voru áætluð verk­lok liðin.

Í blogg­færslu sem Hannes birti þann 12. ágúst í fyrra sagði hann ekk­ert sér­stak­lega liggja á því að skýrslan yrði birt. „Ég hef tals­verða reynslu af stórum verkum og tel, að tafir séu ill­skárri en óða­got og óvand­virkni. Ég hygg, að ég geti lofað því, að skýrslan tefj­ist minna en skýrslan um spari­sjóð­ina,“ sagði hann í blogg­færsl­unni.

Loforðið tekst Hannesi ekki að standa við en þegar skýrslan verður birt í októ­ber verða rúm­lega tvö ár liðin frá áætl­uðum verk­lokum. Spari­sjóðs­skýrsl­unni var skilað nærri tveimur árum eftir áætlun.

Hannes hefur áður unnið að skýrslu á vegum Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir fjár­mála­ráðu­neytið. Árið 2007 samdi Árni Mathiesen, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, við stofn­un­ina um gerð skýrslu sem fjall­aði um skatta­breyt­ingar á valda­tíma Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árunum 1991 til 2007. Í samn­ingnum var áskilið að Hannes ann­að­ist verk­efnið en ásamt honum komu Tryggvi Þór Her­berts­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Frið­björn Orri Ket­ils­son, fyrrum rit­stjóri Amx-vefs­ins, að gerð skýrsl­unnar.

Áætlað var að kostn­aður við skýrsl­una yrði tíu millj­ónir króna en heild­ar­kostn­að­ur­inn nam um þrettán millj­ónum króna. Þá skil­aði Hannes af sér skýrsl­unni rúmi ári eftir umsamin verk­lok, í nóv­em­ber 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu