„Skrifuð í þeim augljósa til­gangi að sverta mína persónu“

Ýmsar rang­færslur eru í bók Eggerts Skúla­sonar, And­er­senskjölin, sem kom út á dög­unum. Þetta segir Gunnar Andersen, fyrrum for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem er til umfjöll­unar í bók­inni.

„Skrifuð í þeim augljósa til­gangi að sverta mína persónu“
Kærði málið Gunnar Andersen segir að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi kært lek­ann á lána­bók Kaup­þings til fjöl­miðla en málið var fellt niður hjá sak­sókn­ara. Hins vegar hafi verið reynt að leggja fyrir hann gildru svo það liti út fyrir að hann hefði lekið þessum upp­lýs­ingum sjálfur. Mynd: Kristinn Magnússon

Á dög­unum kom út bók eftir Eggert Skúlason, And­er­senskjölin – rann­sóknir eða ofsóknir? Bókin fjallar meðal ann­ars um mál Gunnars Þ. Andersen, fyrrum for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem dæmdur var fyrir að leka trún­að­ar­skjölum um lána­við­skipti Guðlaugs Þórs Þórð­ars­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til DV, sem Eggert rit­stýrir nú. Gunnar segir að margt af því sem hann hafi séð úr bók­inni sé ýmist rangt eða vill­andi.

Meg­in­þema bók­ar­innar er að rann­sóknir á glæpum tengdum hrun­inu hafi að hluta verið ofsóknir.

Gunnar tekur fram að hann hafi ekki lesið bók Eggerts og geti því ekki tjáð sig um hana í heild sinni. Hann hafi þó lesið grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu þann 29. apríl þar sem greint var frá ýmsum full­yrð­ingum í bók­inni. Gunnar segir að sú grein sé full af rang­færslum og vill leið­rétta eft­ir­far­andi stað­hæf­ingar. 

Meintur leki á minniskubbi  

Í bók­inni er ýjað að því að Gunnar hafi lekið minniskubbi sem inni­hélt lána­bók Kaup­þings. „Lilja [Stein­þórs­dóttir, innri end­ur­skoð­andi Nýja Kaup­þings] hringdi á sendil bank­ans sem fór með kubb­inn til fjár­mála­eft­ir­lits­ins sama dag í umslagi merktu Gunnari Andersen. [...] Strax dag­inn eftir barst Þórarni Þor­geirs­syni, lög­manni Nýja Kaup­þings, til eyrna að upp­ljóstr­un­ar­síðan WikiLeaks hefði birt skýrsl­una,“ segir til að mynda á blað­síðu 68 í bók­inni.

Þessu hafnar Gunnar: „Þarna er talað um lána­bók Kaup­þings og sagt að ég hafi lekið henni. Ef ég man það rétt átti bíl­stjóri að hafa komið með kubb í umslagi til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Um sama leyti barst þetta í hendur blaða­manna og kom í ýmsum fjöl­miðlum. Þá fór Ólafur Arnarson Clausen á Press­unni strax af stað og gaf sterk­lega í skyn að ég hefði lekið þessu, án þess að gera grein fyrir því hvernig hann vissi af send­ing­unni, umslag­inu og bíl­stjór­anum.“  

Kjánalegar gildrur

Hann segir það tómt bull að gögnin hafi borist fjöl­miðlum frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. „Það er engu lík­ara en að ein­hver hafi sent þetta með þessum hætti og stílað gögnin á mig gagn­gert til að búa til þessa lyga­sögu. Satt að segja virð­ist þetta hafa 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár