Skallaði móður barnsmóður sinnar á áætluðum fæðingardegi

Ekki fékkst dæmt nálg­un­ar­bann á mann sem keyrði á bíl móður barns­móður hans og skall­aði hana síðan. Hann segir bens­ín­gjöf­ina hafa fests og að honum hafi skrikað fótur og óvart skallað tengda­móður sína fyrr­ver­andi.

Skallaði móður barnsmóður sinnar á áætluðum fæðingardegi
Segir meinta árás vera óhöpp Maðurinn segir bens­ín­gjöf hafa verið fasta niðri með þeim afleið­ingum að hann keyrði á bíl móður barns­móður hans. Honum hafi síðan skrikað fótur þegar hann steig út úr bílnum, með þeim afleið­ingum að hann skall­aði hana óvart. Mynd: Shutterstock

Hér­aðs­dómur Reykja­ness úrskurð­aði í dag í máli fjöl­skyldu- og vel­ferð­ar­nefndar Sand­gerð­is­bæjar, Garðs og Voga gegn ungum manni, en farið var fram á nálg­un­ar­bann á hann gagn­vart barns­móður hans. Fyrir er á honum nálg­un­ar­bann gagn­vart móður barns­móður hans. DV fjall­aði á dög­unum mikið um árás hans á Þórólf Árnason, for­stjóra Sam­göngu­stofu, í Ármúl­anum. Maðurinn hefur fengið dóm fyrir lík­ams­árás og hót­anir.

Í dóms­úr­skurði er vísað til atviks sem er sagt að hafi átt sér stað þann 14. apríl síð­ast­lið­inn. Er sagt að þá hafi hann gengið ber­serks­gang á heim­ili barns­móður sinnar og veist í kjöl­farið að móður hennar. Barns­móðir hans bar þá barn hans undir belti og var settur fæð­ing­ar­dagur þennan sama dag. Hún fæddi barnið síð­ast­lið­inn föstu­dag en í máls­gögnum kemur fram að þá hafi þurft að fjar­lægja mann­inn af Lands­spít­al­anum að ósk starfs­fólks.

Fjöl­skyldu- og vel­ferð­ar­nefnd telur að börn kon­unnar séu í háska vegna fram­göngu manns­ins og telur að hún hafi búið við langvar­andi heim­il­is­of­beldi. Konan segir sjálf að mað­ur­inn hafi ekki lagt á hana hendur en hann hafi verið ógn­andi og hún hafi verið hrædd, svo mjög að á hún hafi flúið heim­ilið eftir árás á móður hennar. 

Þrátt fyrir að það sé mat nefnd­ar­innar að líkur séu á því að mað­ur­inn muni beita barns­móður sína ofbeldi þá mat dóm­ar­inn, Jón Hösk­ulds­son, það sem svo að nálg­un­ar­bann væri ekki nauð­syn­legt.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár