Sjálfstæðismenn vilja ekki að Gunnar Bragi fái sendiherrastöðu

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra er ekki lengur í náð­inni hjá stór­út­gerð­inni. Hann er sagður leita að útgöngu­leið úr stjórn­málum og sendi­herra­staða er nefnd sem mögu­leg lausn.

Sjálfstæðismenn vilja ekki að Gunnar Bragi fái sendiherrastöðu

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra nýtur ekki sömu vel­vildar og hann naut áður af hálfu áhrifa­mik­illa afla í sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði. Þá er staða hans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi talin hafa veikst. Ýmsir þættir spila þar inn í, en stað­fastur stuðn­ingur ráð­herr­ans við við­skipta­þving­anir gegn Rúss­landi vegur lík­lega þyngst. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar leitar Gunnar Bragi að útgöngu­leið úr póli­tík. Hefur sú hug­mynd verið viðruð meðal stjórn­ar­liða að hann verði skip­aður sendi­herra áður en kjör­tíma­bil­inu lýkur. Tregða mun vera við þetta meðal sjálf­stæð­is­manna og einn við­mæl­andi Stund­ar­innar úr stjórn­ar­lið­inu segir að for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins hugn­ist ekki að Gunnar Bragi verði skip­aður sendi­herra. Hins vegar er bent á að eftir skipun Geirs H. Haarde sem sendi­herra í Washington eigi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn inni sendi­herra­stól. 

Baklandið brestur

Áður en Gunnar Bragi hóf þátt­töku í stjórn­málum starf­aði hann á versl­un­ar­sviði Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og sem fram­kvæmda­stjóri bensín- og veit­inga­söl­unnar Ábæjar á Sauð­ár­króki. Mikið hefur mætt á honum eftir að hann var skip­aður utan­rík­is­ráð­herra sum­arið 2013. Hann sætti harðri gagn­rýni þegar hann dró aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu til baka án þess að málið fengi þing­lega með­ferð. Margir and­stæð­ingar Evr­ópu­sam­bands­ins fögn­uðu þessu og gátu þeir sem helst ótt­uð­ust breytt sam­keppn­isum­hverfi vegna mögu­legrar Evr­ópu­sam­bands­að­ildar andað léttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

26 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár