Sjálfboðaliðar spara bændum 108 milljónir á mánuði

Á tveimur vin­sælum starfsmiðl­un­ar­síðum er aug­lýst eftir á þriðja hund­rað sjálf­boða­liðum til að sinna störfum í land­bún­aði. Undirboð og brota­starf­semi á vinnu­mark­aði hafa aldrei verið meiri en núna að mati Drafnar Har­alds­dóttur, sér­fræð­ings hjá ASÍ. Sjálf­boða­liða­störfin falli mörg í þann flokk og séu ólög­leg.

Úr íslenskri sveit
Úr íslenskri sveit Ísland hefur aðdrátt­ar­afl fyrir marga og það hafa bændur nýtt sér, með því að ráða sjálf­boða­liða til starfa í stórum stíl. Mynd: Hólmfríður Helga Sigurðardóttir

Bændur spara sér rúm­lega 108 millj­ónir króna á mán­uði með því að nýta sér störf sjálf­boða­liða í stað þess að borga þeim fyrir vinnu sína. Þetta sýna útreikn­ingar Drafnar Har­alds­dóttur, sem stýrir verk­efn­inu Einn réttur – ekk­ert svindl, innan ASÍ. Hún gerði á dög­unum óform­lega könnun á því hversu mörgum sjálf­boða­liðum væri verið að aug­lýsa eftir í land­bún­að­ar­störf um þessar mundir. Á tveimur síðum, Workaway og Helpx, taldi hún 280 aug­lýs­ingar eftir sjálf­boða­liðum til að gegna sjálf­boða­liða­störfum víða um land.

Dröfn segir brýna þörf á að skýra lög og reglur um sjálf­boða­liða­störf og störf starfs­þjálf­un­ar­nema. „Þessi mál eru í ólestri. Samtök atvinnu­lífs­ins og Alþýðu­sam­band Íslands hafa skrifað undir sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu um sjálf­boða­liða­störf. Þar kemur fram að óásætt­an­legt sé að sjálf­boða­liðar gangi í störf sem kjara­samn­ingar gilda um. Það má ekki ráða til sín starfs­menn án þess að borga þeim neitt. Samkvæmt lögum 55/1980 eru samn­ingar um lægri laun en kjara­samn­ingar kveða á um ógildir. Því eru störf sjálf­boða­liða, ef um efna­hags­lega starf­semi er að ræða og þeir ganga í störf sem kjara­samn­ingar gilda um, ólög­leg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár