Sigmundur Davíð segir enn að vantraust sé „tilhlökkunarefni“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er hættur sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann mun mæta á þing til að verja rík­is­stjórn­ina van­trausti og segir það til­hlökk­un­ar­efni, „eins hefur verið hjá mér um nokk­urt skeið.“ Því næst ætlar hann í frí og ferð­ast um landið til að ræða við fólk.

Sigmundur Davíð segir enn að vantraust sé „tilhlökkunarefni“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son baðst lausnar sem for­sæt­is­ráð­herra, á fyrri rík­is­ráðs­fundi á Bessa­stöðum sem lauk rétt fyrir klukkan hálf fjögur í dag. 

„Ég mun sjálfur byrja á því vænt­an­lega sem næsta verk­efni að mæta í þingið og verja þessa rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks van­trausti þar. Það er til­hlökk­un­ar­efni, eins hefur verið hjá mér um nokk­urt skeið,“ sagði Sig­mundur Davíð, sem gaf sér örskamman tíma til að ræða við blaða­menn eftir fund­inn.

„Ég er ekki með neina sér­staka yfir­lýs­ingu aðra en þá að ég tel það mikið fagn­að­ar­efni að það sé að takast að koma saman, eða halda skulum við segja, rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks starf­andi undir for­sæti Sigurðar Inga Jóhanns­sonar. Hann er svo sann­ar­lega hæfur maður í það starf. Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að þess­ari rík­is­stjórn tak­ist að ljúka sem mestu af þeim stóru verk­efnum sem eru enn í vinnslu. Ég er virki­lega ánægður og stoltur af þeim verkum sem þessi rík­is­stjórn hefur unnið til þessa. Hún þarf að gera ennþá meira og þess vegna treysti ég á að þetta góða fólk muni ná sem mestum árangri í því,“ sagði hann. 

Aðspurður hvort nið­ur­staðan væri póli­tískt áfall fyrir hann sjálfan sagði Sig­mundur: „Auðvitað hefði maður viljað fylgja þessum verk­efnum eftir til enda, en aðal­at­riðið er að verk­efnin klárist. Að menn fái svig­rúm, fái frið til þess að klára þessi verk­efni og gera það sem best. Þannig það var ekki æski­legt að ég færi að taka mína stöðu eða að ég endi­lega klári öll málin sem eru komin á góðan veg. Aðal­at­riðið er að við klárum þessi verk­efni.“

Hann sagð­ist síðan vera á leið í frí, eftir að hann væri búinn að greiða atkvæði gegn van­traust­s­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar á Alþingi. „Í fram­haldi af því ætla ég að fara í smá frí með kon­unni minni og barni, njóta þess að vera með þeim í róleg­heitum. “

Í kjöl­farið myndi hann fara um landið og ræða við fólk. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár