Sigmundur Davíð: „Aðdragandi viðtalsins hafði byggst á ósannindum og tilgangurinn verið sá að leiða mig í gildru“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sendi flokks­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins bréf í dag þar sem hann segir meðal ann­ars að við­tal Uppdrag granskning hafi verið hannað til að láta hann líta illa út. Hann er nú kom­inn í ótíma­bundið leyfi frá störfum.

Sigmundur Davíð: „Aðdragandi viðtalsins hafði byggst á ósannindum og tilgangurinn verið sá að leiða mig í gildru“

Í bréfi sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, sendi flokks­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins í dag segir hann margt sem sagt hafi verið um hann und­an­farnar vikur ekki stand­ast skoðun. „En þrátt fyrir að við hjónin höfðum birt sam­an­tekt um málið og sýnt fram á að full­yrð­ingar um að for­sæt­is­ráð­herra Íslands leyndi pen­ingum í skatta­skjóli væru ósannar vilja and­stæð­ingar okkar ekki heyra eða skilja sann­leik­ann. Látið er eins og engar eða ónógar skýr­ingar hafi komið fram og and­stæð­ingar okkar end­ur­taka í sífellu að ég þurfi að skýra mál mitt,“ skrifar hann meðal ann­ars.

Þess ber að geta að Sig­mundur hefur ekki viljað svara spurn­ingum fjöl­miðla um hvernig talið hafi verið fram til skatts; til dæmis spurn­ingum um hvort hann, eða eig­in­kona hans, hafi skilað sér­stöku CFC fram­tali eins og skylt er sam­kvæmt lögum. Í við­tali í Morg­un­blað­inu um helg­ina seg­ist hann reiðubú­inn að birta öll gögn varð­andi skatt­fram­töl þeirra hjóna, með því skil­yrði að for­ystu­menn ann­arra stjórn­mála­flokka geri það líka.

Í bréf­inu segir Sig­mundur Davíð enn­fremur að sjón­varps­menn­irnir sem und­ur­bjuggu við­talið við hann í sænska frétta­skýr­inga­þætt­inum Uppdrag granskning hafi gert það með það eitt í huga að láta hann líta sem verst út. „Atriði var hannað á fölskum for­sendum sem ætlað var að styðja við sögu sem þegar hafði verið skrifuð óháð stað­reyndum. Fram kom í þætti þessum að sænskur sjón­varps­maður sem er þekktur af því að beita óhefð­bundnum aðferðum hafi þó haft efa­semdir um að rétt­læt­an­legt væri að beita mig slíkum brögðum. Efa­semdir um að ganga eins langt og raun bar vitni í því að rugla við­mæl­and­ann í rím­inu til að láta hann koma sem verst út. Skrifað var hand­rit fyrir fram, að því með hvaða hætti dregin yrði upp sem nei­kvæð­ust mynd af mér og mínum,“ skrifar Sig­mundur Davíð. Hann við­ur­kennir hins vegar að hann hafi staðið sig illa í umræddu við­tali og biður flokks­menn afsök­unar á því. 

Að lokum biður Sig­mundur flokks­menn að sýna því skiln­ing eftir und­an­gengna orra­hríð að hann hafi þörf á því að taka sér smá tíma til að vera í næði með konu sinni og barni. „Eftir smá hvíld mun ég svo ferð­ast um landið til að hitta ykkur von­andi sem flest, ræða stöð­una í sam­fé­lagi okkar og svara hverjum þeim spurn­ingum sem þið kunnið að hafa. Við höfum gengið í gegnum mikið saman og unnið mikla sigra í miklu mót­læti. Mörgu er samt ólokið og ég er sann­færður um að við getum haldið áfram að nýta tæki­færi Íslands og haldið upp­bygg­ing­unni áfram. Ekki eru öll kurl komin til grafar. Ég trúi því að stað­reyndir, skyn­semi, rök og sann­leik­ur­inn sigri að lokum. Þess vegna er ég fram­sókn­ar­maður.“

Hér er bréf Sigmundar Davíðs í heild:

Kæru flokks­menn.

Ég færi ykkur þakkir mínar fyrir þau fjöl­mörgu hvatn­ing­ar­skeyti og fal­legu kveðjur sem mér og Önnu Stellu hafa borist á und­an­förnum dögum og vikum. Í þeim erf­ið­leikum sem við Anna Stella höfum gengið í gegnum er slíkur hlý­hugur og vin­skapur ómet­an­legur og yljar okkur um hjarta­rætur.

Síðustu vikur hafa verið mér og mínum afar erf­iðar en þetta hefur líka verið lær­dóms­ríkur tími fyrir mig á margan hátt. Að sjálf­sögðu mun ég draga lær­dóm af eigin við­brögðum, enda lærum við ætíð mest um okkur sjálf af eigin reynslu og allt getur það nýst okkur til að gera hlut­ina betur í fram­tíð­inni.

Á víg­velli stjórn­mála er til­gang­ur­inn oft lát­inn helga þau meðul sem beitt er og margt sagt sem ekki stenst nán­ari skoðun. Þegar hart er sótt að ykkur vegna mín eða fjöl­skyldu minnar bið ég ykkur að muna að allt sem gert var er í fullu sam­ræmi við lög og reglur, öll fjár­mál okkar hjóna eru og voru tíunduð eins og vera ber í skatt­fram­tali okkar. Auk þess hef ég í störfum mínum ætíð leit­ast við að taka ákvarð­anir út frá því hvað best væri til þess fallið að tryggja fram­gang þeirra stóru verk­efna sem ég hef unnið að og gæta með því almanna­hags­muna.
Ég minni á þær viða­miklu upp­lýs­ingar sem við hjónin birtum á heima­síðu minni á páska­dag (http://sigmundurdavid.is/hvad-snyr-upp-og-nidur/) auk yfir­lýs­inga frá end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu KPMG þar sem fram kom að eignum hefði ekki verið leynt og allir skattar greiddir. Þessar tvær sam­an­tektir standa enn fyrir sínu og skýra alla mála­vexti.

En þrátt fyrir að við hjónin höfðum birt sam­an­tekt um málið og sýnt fram á að full­yrð­ingar um að for­sæt­is­ráð­herra Íslands leyndi pen­ingum í skatta­skjóli væru ósannar vilja and­stæð­ingar okkar ekki heyra eða skilja sann­leik­ann. Látið er eins og engar eða ónógar skýr­ingar hafi komið fram og and­stæð­ingar okkar end­ur­taka í sífellu að ég þurfi að skýra mál mitt.

Nú hefur verið upp­lýst í sænskum sjón­varps­þætti að þeir sjón­varps­menn sem í hlut áttu und­ir­bjuggu skipu­lega við­tal við mig með það eitt í huga að ég yrði lát­inn líta sem verst út. Atriði var hannað á fölskum for­sendum sem ætlað var að styðja við sögu sem þegar hafði verið skrifuð óháð stað­reyndum. Fram kom í þætti þessum að sænskur sjón­varps­maður sem er þekktur af því að beita óhefð­bundnum aðferðum hafi þó haft efa­semdir um að rétt­læt­an­legt væri að beita mig slíkum brögðum. Efa­semdir um að ganga eins langt og raun bar vitni í því að rugla við­mæl­and­ann í rím­inu til að láta hann koma sem verst út. Skrifað var hand­rit fyrir fram, að því með hvaða hætti dregin yrði upp sem nei­kvæð­ust mynd af mér og mínum.
Þrátt fyrir að upp­legg hafi verið með þessum hætti er ég fyrstur manna til að við­ur­kenna að ég stóð mig illa i umræddu við­tali. Á sama augna­blik­inu átt­aði ég mig á því að allur aðdrag­andi við­tals­ins hafði byggst á ósann­indum og til­gang­ur­inn verið sá að leiða mig í gildru til að hanka mig á ein­hverju en um leið var ég að reyna að átta mig á því að hverju það snéri. Ég bið ykkur afsök­unar á frami­stöðu minni í umræddu við­tali. Engum finnst sú framistaða sár­ari en mér sjálfum.
Ég taldi þó að þegar sýnt yrði fram á að upp­runa­legar álykt­anir um mig og eig­in­konu mína ættu ekki við rök að styðj­ast yrði tekið til­lit til þess. Þess í stað héldu menn sig við það sem lagt hafði verið upp með og létu eins og engar skýr­ingar hefðu komið fram. Blaða­maður Morg­un­blaðs­ins hefur nú t.d. upp­lýst að hann hafi fengið stað­fest­ingu þess hjá sér­fræð­ingi hjá erlendri fjár­mála­mið­stöð sem sjón­varps­fólk Kast­ljóss ræddi við, að það hafi ekki haft áhuga á upp­lýs­ingum sem ekki studdu þeirra nálgun að mál­efn­inu.

Ég hefði því átt að upp­lýsa um blekk­ingar sjón­varps­mann­anna strax fremur en að leggja ein­göngu áherslu á að veita góðar upp­lýs­ingar í þeirri trú að menn sæju þá ekki lengur ástæðu til að setja málið fram með þeim hætti sem raun varð. Sömu­leiðis hefði ég viljað gera margt á annan veg, eftir á að hyggja.

Kæru félagar.

Á tímum sem þessum kemur einnig í ljós hverjir eru vinir í raun og líka að ekki eru allir við­hlæj­endur vinir. Sumir þeirra sem ég hafði jafn­vel efast um að styddu mig í raun hafa í þessum erf­ið­leikum reynst mér ein­stak­lega vel sem gegn­heilir vinir. Í þessu felst mik­ill lær­dómur um mik­il­vægi þess að hafa ætíð opinn huga gagn­vart fólki og ekki draga álykt­anir nema út frá stað­reyndum.

Ég skil mjög vel að margir hafi upp­lifað óvissu und­an­farna daga. En nú er mik­il­vægt við styðjum öll við bakið á Sigurði Inga og veitum honum og öðrum ráð­herrum og þing­mönnum þann stuðn­ing sem nauð­syn­legur er til að ljúka hratt og vel þeim mik­il­vægu verk­efnum sem eru komin svo vel á veg.

Ég tel mig hafa, með góðum stuðn­ingi ykkar, unnið landi og þjóð margt til heilla allt frá því ég hóf þátt­töku í stjórn­málum. Þegar atgang­ur­inn og illindin hafa verið hvað mest gagn­vart mér og fjöl­skyldu minni verð ég þó að játa, að eitt og annað sækir á hug­ann um hlut­anna eðli.

Ég bið ykkur kæru flokks­menn að sýna því skiln­ing að eftir und­an­gengna orra­hríð hef ég þörf fyrir að taka mér tíma til að vera í næði með konu minni og barni. Eftir smá hvíld mun ég svo ferð­ast um landið til að hitta ykkur von­andi sem flest, ræða stöð­una í sam­fé­lagi okkar og svara hverjum þeim spurn­ingum sem þið kunnið að hafa. Við höfum gengið í gegnum mikið saman og unnið mikla sigra í miklu mót­læti. Mörgu er samt ólokið og ég er sann­færður um að við getum haldið áfram að nýta tæki­færi Íslands og haldið upp­bygg­ing­unni áfram. Ekki eru öll kurl komin til grafar. Ég trúi því að stað­reyndir, skyn­semi, rök og sann­leik­ur­inn sigri að lokum. Þess vegna er ég fram­sókn­ar­maður.

Með kærri vinar og flokk­s­kveðju,
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

FréttirWintris-málið

Leyndu til­vist Wintris og greiddu ekki skatta í sam­ræmi við lög

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­kona hans við­ur­kenndu í bréfi til rík­is­skatt­stjóra að hugs­an­lega hefðu þau ekki farið að reglum með því að skila ekki CFC-skýrslum. Þurftu að láta leið­rétta skatt­fram­töl mörg ár aftur í tím­ann. Útsvar, auð­legð­ar­skattur og tekju­skattur var end­ur­á­kvarð­aður.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár