Sex villandi staðhæfingar í ræðu Trumps um Parísarsamkomulagið

The Washington Post fór yfir nokkrar stað­hæf­ingar í ræðu Donalds Trump og komst að því að nokkrar þeirra eru vill­andi og aðrar bein­línis rangar.

Sex villandi staðhæfingar í ræðu Trumps um Parísarsamkomulagið
Donald Trump Hefur dregið Banda­ríkin út úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Mynd: Shutterstock

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti í gær að Banda­ríkin myndu draga sig úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu um aðgerðir í þágu lofts­lags­mála. Banda­ríski fjöl­mið­ill­inn The Washington Post fór yfir ræð­una sem for­set­inn flutti af til­efni ákvörð­un­ar­innar og komst að því að nokkrar stað­hæf­ingar Trumps eru í besta falli vill­andi og aðrar bein­línis rangar:

 

1. Ekki hægt að endursemja um Parísarsamkomulagið

Donald Trump sagð­ist ætla að reyna að semja upp á nýtt fyrir Banda­ríkin og fá „sann­gjarnan“ samn­ing að þessu sinni. 

Blaða­menn The Washington Post segja þessi orð afar vill­andi, enda setji hvert ríki sér sín eigin mark­mið sam­kvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Trump hefði ein­hliða getað breytt þeim skuld­bind­ingum sem Barack Obama, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti, sam­þykkti án þess að draga Banda­ríkin úr sam­komu­lag­inu. Hins vegar er ekki hægt að end­ur­semja um Par­ís­ar­sam­komu­lagið. 

2. Samkomulagið heimilar Kína ekki að byggja hundrað kolaverksmiðjur

Trump sagði í ræðu sinni að sam­kvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu mætti Kína byggja hund­rað kola­verk­smiðjur til við­bótar, en Banda­ríkin ekki. Þá sagði hann Indland mega tvö­falda kola­fram­leiðslu sína til árs­ins 2020. 

Þetta er rangt. Par­ís­ar­sam­komu­lagið er ekki bind­andi og hver þjóð setur sín mark­mið. Það er ekk­ert í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu sem kemur í veg fyrir að Banda­ríkin byggi kola verk­smiðjur og ekk­ert sem gefur Kína eða Indlandi leyfi til að byggja kola verk­smiðjur. Hins vegar hafa mark­aðs­að­stæður valdið því að þessi lönd hafa þurft að loka þessum verk­smiðjum og Kína til­kynnti fyrr á þessu ári að ríkið hefði hætt við áætl­anir um að byggja fleiri en hund­rað verk­smiðjur sem brenna kolum. 

3. Bandaríkin myndu líklega ekki glata 2,7 milljón störfum

Í ræð­unni vitn­aði Trump í rann­sókn á vegum National Economic Research Associates og sagði að sam­kvæmt henni gætu Banda­ríkin glatað allt að 2,7 milljón störfum fyrir árið 2025 vegna Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins, þar á meðal 440 þús­und fram­leiðslu­störf.

Washington Post bendir á að rann­sóknin var fjár­mögnuð af yfir­lýstum and­stæð­ingum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins, og ætti því að taka með fyr­ir­vara. Rann­sak­endur gerðu jafn­framt ráð fyrir atburð­ar­rás sem eng­inn annar gerir, að Banda­ríkin muni taka afar rót­tæk skref til að minnka losun um 26 til 28 pró­sent fyrir árið 2025. Þá gerði rann­sóknin ekki ráð fyrir neinum ávinn­ingum af minnkun los­unar eða störfum sem yrðu til vegna breyttrar tækni. 

4. Mistúlkun á rannsóknarniðurstöðum

Trump benti einnig á að jafn­vel þó svo að allar þjóðir myndu standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu myndi hlýnun jarðar aðeins minnka um 0,2 gráður fyrir árið 2100. Pínu, pínu lítið, sagði hann.

Hér er Trump að vísa í rann­sókn sem gerð var á vegum MIT árið 2015. Höfundur skýrsl­unnar, John Reilly, hefur stigið fram og sagst algjör­lega ósam­mála túlkun Trumps á því að 0,2 gráður sé lítið. Þá benti hann rétti­lega á að hluti af sam­komu­lag­inu væri að end­ur­skoða aðgerð­ar­á­ætl­an­irnar reglu­lega fyrir árið 2030. Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar hafi sýnt fram á að Par­ís­ar­sam­komu­lagið væri lítið skref fram á við og að ríki þyrftu að taka stig­vax­andi skref í mála­flokknum á næstu árum.

5. Bandaríkin þurfa ekki að greiða tugi milljarða í sjóðinn

Trump sagði Banda­ríkin skuld­bundin sam­kvæmt sam­komu­lag­inu til að greiða tugi millj­arða Banda­ríkja­dala í lofts­lags­sjóð Sam­ein­uðu þjóð­anna. Önnur ríki komi ekki nálægt skuld­bind­ingum Banda­ríkj­anna og að fæst hafi greitt í sjóð­inn. Banda­ríkin hafi þegar greitt einn millj­arð dala og að hluti þess hafi átt að fjár­magna stríðið gegn hryðju­verkum. 

Þetta er rangt. Alls hafa 43 ríki skuld­bundið sig til að setja alls 10,13 millj­arða Banda­ríkja­dala í sjóð­inn, þar af greiði Banda­ríkin 3 millj­arða. Þá hafa fram­lög Banda­ríkj­anna öll verið tekin úr efna­hags­stuðn­ings­sjóði utan­rík­is­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna. 

6. Kína og Indland eru ekki stikkfrí

Trump hélt því fram að Kína mætti auka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í gríð­ar­legum mæli í 13 ár sam­kvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Þá sagði hann þátt­töku Indlands háða millj­arða doll­ara fjár­hags­að­stoð í formi þró­un­ar­að­stoðar. 

Kína hefur skuld­bundið sig til þess að draga veru­lega úr útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, um 60 til 65 pró­sent, fyrir árið 2030 og Indland ætlar að minnka losun um 33 til 35 pró­sent á sama tíma. Það er hins vegar rétt að Indland þiggur erlenda fjár­hags­að­stoð til þess að ná þessum mark­miðum. 

 

Hér má sjá allan list­ann yfir rang­færslur Donalds Trump hjá The Washington Post.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár