Sérsveitin lokaði Bryggjuhverfinu: Leituðu að vopnuðum manni í Adidas-galla

Stór lög­reglu­að­gerð átti sér stað í Bryggju­hverf­inu í gær­kvöldi og stóð yfir í nokkra klukku­tíma. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ásamt sér­sveit­inni lok­aði öllum leiðum inn og úr úr hverf­inu. Íbúi sem til­kynnti um málið var að lokum hand­tek­inn.

Sérsveitin lokaði Bryggjuhverfinu: Leituðu að vopnuðum manni í Adidas-galla
Lokað fyrir umferð Lög­reglan lok­aði fyrir alla umferð á meðan leitað var í hverf­inu. Mynd: Samsett mynd

Fjöl­mennt lið lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ásamt sér­sveit­ar­mönnum frá Rík­is­lög­reglu­stjóra lok­uðu öllum leiðum inn og út úr Bryggju­hverf­inu í Graf­ar­vogi um klukkan tíu í gær­kvöldi. Íbúi í hverf­inu sem Stundin ræddi við segir að lög­reglu­menn hafi leitað að vopn­uðum karl­manni í Adidas-galla.

„Ég get stað­fest að lög­reglu­að­gerð átti sér stað í Bryggju­hverf­inu í gær­kvöldi. Meira get ég ekki sagt en við munum gefa út frétta­til­kynn­ingu á eftir,“ segir Val­garður Val­garðs­son, aðal­varð­stjóri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Vopnaðir á vappi um hverfið

Umrætt vitni sagði lög­reglu­að­gerð­ina hafa staðið í nokkrar klukku­stundir. Lög­reglan hafi verið búin að loka hverf­inu um tíu-leitið í gær­kvöldi og um klukkan tvö í nótt voru lög­reglu­menn enn á „vappi um svæðið“ eins og hann orð­aði það. Þeir hafi verið vopn­aðir og gráir fyrir járnum.

Stundin náði tali af stöðv­ar­stjór­anum Krist­jáni Ólafi Guðn­a­syni en hann hefur umsjón með mál­inu hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hann segir rann­sókn þess enn í gangi.

Þannig að þessu máli lauk ekki í gær­kvöldi?

„Vonandi er þetta langt komið en það er ekki hægt að segja að þessu sé lokið,“ sagði Kristján Ólafur og bætti við að von væri á frétta­til­kynn­ingu frá lög­regl­unni innan tíðar.

Töluverður erill hjá lögreglu

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði í nógu að snú­ast í gær­kvöldi og í nótt. Rétt fyrir ell­efu í gær­kvöldi þá var til­kynnt um heim­il­is­of­beldi og lík­ams­árás í aust­ur­bænum. Enginn hand­tek­inn vegna máls­ins og litlir sem engir áverka á þol­anda.

Þá var einnig rétt fyrir ell­efu í gær­kvöldi til­kynnt um mann í ann­ar­legu ástandi  utan við hús í vest­ur­bænum og var lög­regla send á vett­vang. Skömmu síðar var karl­maður hand­tek­inn skammt frá vett­vangi, en hann hafði þá reynt að kveikja í bif­reið sem stóð við húsið en lög­reglu­mönnum tókst að slökkva eld­inn. Maðurinn hafði einnig í hót­unum við íbúa í fleiri húsum og lét mjög ófrið­lega. Hann vistaður í fanga­geymslu vegna frek­ari rann­sóknar máls­ins.

Þá var öku­maður stöðv­aður rétt fyrir fjögur í nótt grun­aður um akstur undir áhrifum áfengis. Hann var laus að lok­inni blóð­töku.

Uppfært: Tilkynning lögreglu kl. 12.08

Fjöl­mennt lið lög­reglu leit­aði að karl­manni í Bryggju­hverf­inu í Reykja­vík í gær­kvöld, eftir að íbúi þar til­kynnti um alvar­legar hót­anir sem honum höfðu borist sím­leiðis auk þess sem til­kynn­ing barst skömmu síðar um mann í hverf­inu vopn­aðan hnífi. Til­kynn­ing­arnar voru metnar alvar­legar og við­bún­aður lög­reglu í sam­ræmi við það. Fólust aðgerðir meðal ann­ars í því að lokað var tíma­bundið fyrir umferð á svæð­inu meðan leit stóð yfir. Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra var  enn fremur kölluð á vett­vang.

Aðgerð lög­reglu stóð yfir í ríf­lega þrjár stundir og lauk með hand­töku á manni á þrí­tugs­aldri, en sá  til­kynnti upp­haf­lega um mann með hníf. Til­kynn­and­inn var óvopn­aður.

Hættu­á­standi var aflétt rétt ríf­lega eitt í gær­kvöldi. Hinn hand­tekni bíður yfir­heyrslu.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár