Segist hafa beðið Helga Hrafn um að veita ekki viðtöl um ágreiningsmál

„Hann hefur því miður ekki virt það,“ skrifar Birgitta Jóns­dóttir sem er óánægð með ummæli kollega síns um hvort stefnt verði að stuttu kjör­tíma­bili.

Segist hafa beðið Helga Hrafn um að veita ekki viðtöl um ágreiningsmál

Birgitta Jóns­dóttir, þing­kona Pírata, gagn­rýnir Helga Hrafn Gunn­ars­son, þing­mann sama flokks, harð­lega vegna ummæla sem höfð eru eftir honum á vef Kjarnans. Fyrr í vik­unni skarst í odda milli áhrifa­fólks í flokknum á sam­fé­lags­miðlum, en deil­unum lyktaði með hvatn­ingu Birgittu til félaga sinna um að bera klæði á vopnin. Það virð­ist hins vegar ekki hafa tek­ist.

Í við­tali Kjarnans við Helga Hrafn sem birt­ist í morgun er haft eftir honum í óbeinni ræðu að það sé mis­skiln­ingur að Píratar vilji styttra þing á næsta kjör­tíma­bili. „Það er hins vegar Birgitta Jóns­dóttir sem er á þeirri skoðun, en Helgi Hrafn und­ir­strikar að til­lagan hafi verið felld á aðal­fundi og að hann sé ekki sam­mála Birgittu í þessu máli,“ segir í grein­inni. 

Birgitta Jóns­dóttir hefur brugð­ist við ummæl­unum á Facebook með því að saka Helga Hrafn um „stór­kost­lega mikla rang­færslu“. Orðrétt skrifar hún:

„Helgi Hrafn virð­ist alger­lega gleyma því að þetta er bara ekki til­lagan mín heldur til­laga sem hlaut lang­mestan stuðn­ing frá félögum okkar í kosn­inga­kerf­inu: Betri aða­fundur um þau mál­efni sem Píratar vildu leggja áherslu á á aðal­fund­inum. Síðan er það stór­kost­lega mikil rang­færsla að segja að til­lagan hafi verið felld, henni var breytt smá­vægi­lega þar sem ákveðið var að hafa það opn­ara en ella að hafa þetta lengur en 9 mán­uði, þetta er þó sam­kvæmt til­lög­unni ekki ályktun um lengra tíma­bil en eitt þing. Eitt þing er eitt ár og eitt kjör­tíma­bil eru fjögur ár.“

Í athuga­semd undir færsl­unni segir Birgitta: „Ég er búin að rétta útrétta sátt­ar­hönd og bað HHG um að taka ekki við­töl um ágrein­ings­mál, hann hefur því miður ekki virt það. Verð að geta útskýrt rang­færslur.“

Álykt­un­ina sem málið snýst um má finna á vef Pírata og var sam­þykkt í kosn­inga­kerfi flokks­ins. Þar er hvatt til þess að eftir næstu kosn­ingar „muni næsta þing fjalla um og sam­þykkja tvö mál“ og að því loknu verði „boðað til nýrra þing­kosn­inga“. 

Uppfært 28. febrúar kl. 13:30

Helgi Hrafn Gunn­ars­son hefur birt eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu á Pírata­spjall­inu:

Óhreinn þvottur Pírata hér, fyrir allra augum eins og venju­lega.
1. Ég vil biðja Pírata afsök­unar á því að hafa dýpkað mis­skiln­ing um til­högun næsta kjör­tíma­bils í sam­bandi við stjórn­ar­skrána. Mér hafði skilist á öllum sem ég hafði talað við um málið, að upp­runa­leg til­laga hefði verið sú að á næsta kjör­tíma­bili myndum við ein­ungis fara í tvö mál, þ.e. ESB-umsókn­ina og stjórn­ar­skrána og gera þetta á stuttu kjör­tíma­bili, nánar til tekið á 6-9 mán­aða tíma­bili. Sú til­laga skild­ist mér að hefði verið felld og að í stað­inn hefði verið sam­þykkt að leggja fókus á þessi tvö mál án skil­yrðis um stutt kjör­tíma­bil og án þess að fjalla ein­ungis um þessi tvö mál. Við lestur á til­lög­unni sem var sam­þykkt var stendur: "Aðal­fundur Pírata ályktar því að leggja fyrir flokks­menn að Píratar lofi íslensku þjóð­inni, að fái flokk­ur­inn umboð hennar í næstu kosn­ingum til Alþingis muni næsta þing fjalla um og sam­þykkja tvö mál."
Strangt til tekið þýðir þetta að það verði bara eitt þing, eins og Birgitta bendir á, án þess að til­greint verði hversu langt það sé. Það er lítið skrýtið að þetta valdi rugl­ingi. Ég get tekið á mig ábyrgð á því að hafa mis­skilið þetta upp­runa­lega og sömu­leiðis að í kjöl­farið dreift út ein­hverjum mis­skiln­ingi um þetta. Ég bið sjálfan mig afsök­unar á því, en flokk­inn afsök­unar á því að hafa dýpkað mis­skiln­ing­inn frekar en valda því að hann skerpt­ist.
Að því sögðu, þá stendur eftir að skiln­ingur fólks er óljós um þetta, ekki bara minn heldur fjöl­margra ann­arra. Fjöl­margir sem greiddu til­lög­unni atkvæði skildu hana þannig að skil­yrðið um stutt kjör­tíma­bil væri ekki lengur með. Ég hef áður sagt í við­tali, við Harma­geddon nánar til tekið, að ég væri vissu­lega til í að stefna að stuttu kjör­tíma­bili en að ég gæti ekki lofað því vegna þess að ég veit ekki hvernig öðrum tekst að skemma fyrir ferl­inu, en það eru fjöl­margar leiðir til að skemma fyrir málum á Alþingi. Í til­lög­unni stendur ekk­ert um hvernig nákvæm­lega við hyggj­umst ná mark­mið­inu á einu þingi, en auga­leið hlýtur að gefa að málið verður þafið í döðlur af and­stæð­ingum þess, eins og maður segir á nútíma-íslensku.
Tillaga hefur komið fram um að við skerpum á stefn­unni og skýrum hana þannig að það fari ekk­ert á milli mála um hvað sé að ræða, enda ótækt að það sé ólíkur skiln­ingur fólks um svo mik­il­vægt mál.
2. Ég vil biðja Birgittu Jóns­dóttur afsök­unar á orðum mínum sem birt­ust í Morg­un­blað­inu snemma í nýlið­inni viku (að mér þætti skjóta skökku við o.s.frv.). Um leið og ég sá umræð­una í kjöl­farið fór ég að velta fyrir mér hvort ég skuld­aði henni afsök­un­ar­beiðni og hefði hlaupið fram fyrir mig, en þá var ég ennþá svo gríð­ar­lega reiður að mér fannst þetta ein­hvern veg­inn þurfi. Ég sé núna að það hefði verið mun betra að ræða málið fyrst við Birgittu, en satt best að segja var á þeim tíma ekki tal­sam­band milli okkar, sem er eitt­hvað sem við höfum reynt að laga síðan þá. Mér var gjör­sam­lega mis­boðið en ég sé núna að það rétt­lætir ekki að ganga fram með þeim hætti sem ég gerði þá. Því vil ég biðja Birgittu Jóns­dóttur inni­lega afsök­unar á því.
Hitt er að ég stend við að við þurfum að ræða hvernig við ætlum að fara með vald, og það bein­ist ekki ein­ungis að Birgittu Jóns­dóttur. Ég hef líka stundum farið óvar­lega með vald sjálfur og vil endi­lega að við höldum þeirri umræðu áfram, en þá frekar í góðu rúmi þar sem við getum tekið málið fyrir með sem minnstri hættu á deilum. Vald er þess eðlis að það veldur deilum og fólki þykir það jafnan þung ásökun að hafa mis­beitt því og þess vegna mik­il­vægt að við reynum að ræða það af sem mestri yfir­vegun og í aðstæðum þar sem við getum hvað best tek­ist á við erfið mál.
3. Það er rétt hjá Birgittu Jóns­dóttur að hún bað mig um að vera ekki með neinar bombur í fjöl­miðlum og ég hef reynt að forð­ast þær. Það mistókst greini­lega vegna ólíks skiln­ings á því hvernig hafi farið á síð­asta aðal­fundi og nákvæm­lega hvert eðli til­lög­unnar sé sem sam­þykkt var. Ég vil biðja hana afsök­unar á því að hafa ekki farið var­legar í fjöl­miðlum. Ég reyndi en það mistókst og það er á mína ábyrgð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár