Segir pólitíska andstæðinga hafa notað fötlunina gegn sér

„Víst getur fatl­aður maður verið for­maður stjórn­mála­flokks,“ skrifar Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­manns­fram­bjóð­andi.

Segir pólitíska andstæðinga hafa notað fötlunina gegn sér
Pressphotos.biz / Geiri Mynd: Pressphotos/Geirix

Helgi Hjörvar, for­manns­fram­bjóð­andi í Sam­fylk­ing­unni og þing­maður til margra ára, seg­ist í fyrsta sinn á 20 ára stjórn­mála­ferli finna fyrir for­dómum vegna sjón­leysis. Helgi fjallar um málið í ein­lægri færslu á Facebook-síðu sinni undir yfir­skrift­inni „Víst getur fatl­aður maður verið for­maður stjórn­mála­flokks“. 

Helgi segir að sem borg­ar­full­trúi og þing­maður hafi hann aldrei orðið var við for­dóma og heldur talið skort­inn á sjón­inni styrkja sig fremur en hitt.

„Að vísu nota keppi­nautar sjón­ina eins og annað til að draga úr trú­verð­ug­leika með ummælum eins og: „Hann sér nú meira en hann vill vera láta,“ o.s.frv. En það er bara venju­leg ill­mælgi sem stjórn­mála­menn þurfa að þola og myndi bara bein­ast að ein­hverju öðru ef ekki væri sjón­miss­ir­inn,“ skrifar Helgi og bætir við:

„En núna mæti ég sem­sagt í fyrsta sinn við­horfum um að ég geti ekki ráðið við það verk­efni að vera for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar vegna fötl­unar minnar. Einn skrifar um þetta á opin­beru fés­bók­ar­síð­unni minni, ég hef fengið tölvu­póst með efa­semdum um getu mína til for­mennsku að þessu leyti og ýmsar athuga­semdir í sím­tölum og sam­tölum, fyrir nú utan það sem fólk ræðir þar sem ég heyri ekki til. Mér hefur alltaf reynst best að tala opin­skátt og hisp­urs­laust um fötlun mína og vil nota þetta tæki­færi til að ræða þessar efa­semdir og for­dóma.“

Hann bendir á að fólk með fötlun hafi starfað í sveit­ar­stjórnum og á þingi í vax­andi mæli og flestir telji fatl­aða eiga erindi þangað. „En kannski það sé ekki jafn sjálf­sagt að við eigum heima í fremstu for­ystu, svo sem ráð­herra­emb­ætti eða flokks­for­mennsku. Að minnsta kosti verð ég fyrst var svona efa­semda nú þegar málið snýst um flokks­for­mennsku. Mér vit­an­lega hafa raunar aldrei verið kjörnir á Íslandi flokks­for­menn eða ráð­herrar úr röðum fatl­aðra, þó Magnús Kjart­ans­son heit­inn hafi orðið fatl­aður í emb­ætti. Mér gæti hafa yfir­sést ein­hver eða ein­hverjir fatl­aðir sem kjörnir hafa verið í slíkar stöður en það er a.m.k. afar fátítt þó öryrkjar séu nokkuð stór hluti lands­manna. Kannski er það svo að sumum finn­ist við ágæt með en bara ekki í æðstu for­ystu.“

Hann segir sumt af þessu aðeins vera and­styggi­lega for­dóma sem ekk­ert sé hægt að gera við. „Öll þurfum við að fást við ein­hverja erf­ið­leika og ég þarf ekki að kvarta yfir hlut­skipti mínu en fáfræði og for­dóma þarf að ræða enda stafa sumar efa­semd­anna af skorti á reynslu og þekk­ingu. Fólk spyr sig spurn­inga eins og hvort for­maður þurfi ekki að geta lesið prentað mál, hvort hann geti nokkuð haft þá yfir­sýn sem þarf, áttað sig nægi­lega fljótt á málum til að hafa for­ystu fyrir okkur o.s.fr.“

Þá bendir hann á að alblindir menn hafa t.d. verið ráð­herrar félags­mála í Svíþjóð og inn­an­rík­is­mála í Bret­landi. „Fötlunin á því ekki að koma í veg fyrir að menn ráði við slík verk­efni. Þegar ég var for­maður þing­flokks sós­í­alde­mókrata í Norð­ur­landa­ráði sögðu sænskir kollegar mínir mér frá því að Bengt Lindqvist, blindi félags­mála­ráð­herr­ann, hefði verið sá sem kenndi þeim að rata um það mikla völ­und­ar­hús sem sænska þingið er. Því hann hafði auð­vitað lagt húsa­skipan betur á minn­nið en nokkur annar. Og David Blunkett var ekki bara öfl­ugur ráð­herra heldur tókst líka að eiga ekta breskt hneyksl­is­mál eins og ófatl­aður væri.“

Helgi seg­ist telja að hann geti ekki síður en aðrir gegnt æðstu trún­að­ar­störfum, en við­ur­kennir að hann lesi ekki með sama hætti og aðrir og verði að reiða sig á end­ur­sögn ann­arra um margt.

„Ég á erfitt með að vera virkur á fés­bók, ræð illa við spjall þar eða að fylgj­ast með vinum mínum einsog ég vildi. Það getur líka verið óheppi­legt fyrir stjórn­mála­mann að sjá ekki kjós­endur, virða þá ekki við­lits, standa einn úti í horni af því að maður sér engan sem maður þekkir o.s.frv. Auðvitað eru þessir gallar og margir fleiri á því að hafa sjón­lausan mann í póli­tík en mér hafa alltaf þótt þeir létt­vægir hjá kost­unum. Því kost­irnir eru m.a. þeir að maður býr að lífs­reynslu, hefur reynt það hvað sam­fé­lag, sam­hjálp og vel­ferð skiptir miklu, þekkir þá skipu­lögðu fátækt sem öryrkjum er búin í tekju­teng­ing­ar­skóg­inum og auð­vitað mörgum fleiri hópum. Það sem aðrir sjá man ég oft líka betur en þeir.“ 

Að lokum skrifar hann: „Ég full­vissa sam­fylk­ing­ar­fólk um að verði ég fyrsti fatl­aði mað­ur­inn til að leiða stjórn­mála­flokk á Íslandi þá verður ekki við sjón­ina að sakast ef ég veld því ekki, heldur ein­hvern af öllum hinum göll­unum sem er að finna í gena­safni mínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár