Sara Lind klökk í réttarsal: „Átti lengi vel erfitt með að keyra framhjá VR“

Sara Lind Guð­bergs­dóttir í rétt­ar­sal. Stefnir VR fyrir ein­elti og ólög­mæta upp­sögn.

Sara Lind klökk í réttarsal: „Átti lengi vel erfitt með að keyra framhjá VR“
Klökk í rétt­ar­sal Sara Lind gengur inn í rétt­ar­sál ásamt Högna Ósk­ars­syni geð­lækni. Ólafía Björk Rafns­dóttir, for­maður VR, sést í bak­grunni. Mynd: Kristinn Magnússon

Aðal­með­ferð fór fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun í skaða­bóta­máli Söru Lindar Guð­bergs­dóttur gegn stétt­ar­fé­lag­inu VR, en Sara Lind stefndi félag­inu fyrir ólög­mæta upp­sögn og ein­elti. Henni var vikið frá störfum hjá VR árið 2013 en hún hafði gegnt stöðu deild­ar­stjóra ráð­gjafa­deildar VR. 

Sara var ráðin til VR í apríl árið 2012 en síðar varð hún sam­býl­is­kona þáver­andi for­manns félags­ins, Stefáns Einars Stef­áns­sonar. DV fjall­aði um það í des­em­ber 2012 að Sara Lind hefði verið ráðin í yfir­manns­stöðu hjá VR þrátt fyrir að hafa ekki verið metin hæfust. Í umfjöll­un­inni segir meðal ann­ars að innan VR hafi sú saga gengið að áður en ráðn­ing­ar­ferlið fór af stað væri búið að ákveða að Sara Lind fengi starfið. Sara Lind og Stefán Einar stefndu í kjöl­farið útgáfu­fé­lag­inu DV og Reyni Trausta­syni, fyrr­ver­andi rit­stjóra blaðs­ins, fyrir meið­yrði. Nið­ur­staða fékkst í málið þann 31. mars síð­ast­lið­inn þegar DV var sýknað í mál­inu í Hæsta­rétti. 

Í réttarsal
Í rétt­ar­sal Sara Lind Guð­bergs­dóttir stefndi VR fyrir ólög­mæta upp­sögn og ein­elti.

Ásakanir um einelti ekki á rökum reistar

Krefst Sara Lind tveggja millj­óna króna í bætur frá stétt­ar­fé­lag­inu vegna miska sem ólög­mæt upp­sögn og ein­elti hafa valdið henni. Nokkru áður en Söru Lind var sagt upp höfðu félags­menn VR hafnað Stefáni Einar í kosn­ingu til for­manns þar sem Ólafía Björg Rafns­dóttir hafði sigur. Ástæður upp­sagnar Söru Lindar voru sagðar skipu­lags­breyt­ingar innan félags­ins. Sara Lind sak­aði Ólafíu Björk í kjöl­farið um ein­elti eftir að henni var sagt upp störfum hjá VR og voru þessar ásak­anir rann­sak­aðar af sál­fræði­stof­unni Líf og sál. Nið­ur­staða sál­fræði­stof­unnar Líf og sál eftir þá rann­sókn var á þá leið að ásak­anir Söru Lindar um ein­elti væru ekki á rökum reistar.

Skýrslu­taka Söru Lindar hófst á því að lög­maður hennar Jónas Fr. Jónsson spurði hana hvert hennar ábyrgð­ar­svið hefði verið. Hún sagð­ist hafa verið deild­ar­stjóri ráð­gjafa­deildar. „Ég sá um mál­efni atvinnu­leit­anda, sem er mjög viða­mikið verk­efni. Skyldur mínar fólust í viku­legum fundum og skipu­lagn­ingu,“ sagði Sara Lind.  Hún sagði að sam­skipti sín við Ólafíu hafi verið stirð frá upp­hafi.

Segist hafa verið hunsuð af Ólafíu

Sara Lind fór yfir starf­svið sitt hjá VR sem fólst í yfir­um­sjón yfir ráð­gjafa­deild. Það fólst í fundum og skipu­lagn­ingu. Svo lýsti Sara Lind sam­skiptum sínum við Ólafíu Rafns­dóttur, for­mann VR. „Ástæðan fyrir því að við erum hér er að því miður var sam­starf okkar ekki eins og á væri kosið. Þetta hefst með því að hún á fund með öllum stjórn­endum félags­ins. Hún kom vel fyrir og ég óskaði eftir því að hún myndi eiga fund með mér. Eftir nokkra daga hafði ég ekk­ert svar fengið og þá óskaði ég form­lega um fund í tölvu­pósti. Það var upp­hafið af þeirri hunsun sem að mér sem stjórn­anda var sýnd. Ég fékk snubb­ótt svör um að ég gæti komið inn þegar ég vildi. Þótt ég hafi ítrekað óskað eftir að ræða við hana þá varð því miður ekk­ert úr því. Þessi dans end­aði eins og frægt er orðið í fjöl­miðlum að mér var sagt upp,“ sagði Sara Lind.

„Ótrúlega mikil lítilsvirðing“

Sara Lind segir að eftir upp­sögn­ina hafi henni liðið mjög illa og hafi það endað með því að hún hafi þurft að leita til geð­læknis. Þegar hún lýsti líðan sinni var hún heyr­an­lega klökk. „Mér leið eðli­lega ekki vel. Mér per­sónu­lega fannst þetta ótrú­lega mikil lít­ils­virð­ing. Það var eins og for­mað­ur­inn hafi lagt sig fram til að grafa undan mér. Mér fannst þetta ótrú­lega mikil nið­ur­læg­ing og erfitt að rifja þetta upp. Ég og fram­kvæmda­stjóri ræddum þessi mál. Í öllum mínum sam­skiptum við for­mann­inn reyndi ég að taka á þessu upp­byggi­lega. Mér fannst mik­il­vægt að við værum sam­stíga út á við. Þá ræddi ég við fram­kvæmda­stjóra og fór yfir leiðir með honum, vildi kom­ast við móts við hegðun for­manns­ins,“ sagði Sara Lind.

Leið illa vegna fréttatilkynningar

Sara Lind sagði að hún telji það missi fyrir VR að hafa sagt sér upp. „Mér leið hrika­lega illa. Það bætti ekki þegar fyr­ir­tækið til­kynnti það opin­ber­lega að mér hafi verið sagt upp í frétta­til­kynn­ing og fjöl­miðlar sögðu frá eðli­lega. Mér leið mjög illa og átti lengi vel mjög erfitt með að keyra fram hjá VR. Þetta hafði mikil áhrif á sjálfs­mynd mína, ég skildi ekki af hverju mér var sagt upp þar sem ég stóð mig vel. Mér fannst þetta til þess fallið að grafa undan mínum trú­verð­ug­leika. Það var erfitt að horfa upp á vera svona lít­ils­virt. Ég leit­aði til geð­læknis til að kom­ast i gengnum þessa tíma. Ég komst ekki sjálf í gegnum þetta,“ sagði Sara Lind.

„Ég skildi ekki af hverju mér var sagt upp“

Hún sagði að það hefði gengið mjög brös­ug­lega að fá nýja vinnu og taldi hún upp til­vik þar sem henni hefði verið tjáð að ekki væri hægt að ráða hana þar sem Ólafíu væri svo illa við hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár