Salan á kvóta Tálknfirðinga: „Þeir ætla að selja í burtu vinnuna mína“

Mikl leynd hvílir yfir söl­unni á þriggja millj­arða kvóta stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis Tálkna­fjarðar suður í Garð á Reykja­nesi. „Þeim er alveg sama þótt byggð­ar­lag­inu blæði,“ segir íbúi á staðnum. Smá­báta­kvóti hluti greiðsl­unnar.

Salan á kvóta Tálknfirðinga: „Þeir ætla að selja í burtu vinnuna mína“
Óvissa Mikil óvissa er um fram­tíð­ina á Tálkna­firði. Salan á veiði­heildum þorps­búa suður í Garð er nán­ast frá­gengin.

Íbúum á Tálkna­firði er mjög brugðið vegna áforma eig­enda Þórs­bergs um að selja skip og kvóta fyr­ir­tæk­is­ins suður í Garð. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er hluti af kaup­unum fólg­inn í því að Tálkn­firð­ingar fá smá­báta­kvóta. Sam­komu­lagið er talið vera í höfn. Bergþór Bald­vins­son, fram­kvæmda­stjóri Nesfisks, vís­aði aðspurður um málið á Guðjón Ind­riða­son, aðal­eig­anda Þórs­bergs. 

Stundin greindi frá mál­inu í gær. Íbúar og fyrr­ver­andi starfs­menn Þórs­bergs fá ekk­ert að vita fremur en Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga sem ítrekað hefur leitað eftir svörum frá eig­endum Þórs­bergs um áform þeirra. „Við kröfðum þá enn einu svara í síð­ustu viku en fengum ekk­ert upp úr þeim þrátt fyrir samn­ing eftir upp­sagn­irnar um þeim beri að halda okkur upp­lýstum. Ég hef ekk­ert fengið upp úr þeim,“ segir íbúi á staðnum, sem vill ekki láta nafns síns getið af ótta við að afkomu hans verði enn frekar ógnað.

Íbúinn ræðir um þá stöðu sem eru uppi þegar verið er að selja 1.200 tonna kvóta Þórs­bergs í burtu af staðnum. Byggða­stofnun á rúm­lega 20 pró­senta hlut í félag­inu og þar með íslenska ríkið. 

„Maður fær ekki að vita neitt hérna. Þeim er alveg sama þótt byggð­ar­lag­inu blæði,“ segir hann.

Eftir standa tóm fisk­vinnslu­hús í 300 manna þorpi þar sem lífs­björgin er að mestu horfin. Starfs­menn Þórs­bergs hafa fram að þessu lagt sveit­ar­fé­lag­inu til um 66 pró­sent af útsvars­tekj­unum. Í byrjun sept­em­ber var öllu starfs­fólki Þórs­bergs á sjó og landi sagt upp. Á starfs­manna­fundi var fólki sagt að það væri vegna fyr­ir­hug­aðr­arar sölu fyr­ir­tæk­is­ins. Ástæðan var að sögn langvar­andi rekstr­ar­tap félags­ins. Um það leyti voru við­ræður í gangi við Odda á Pat­reks­firði um að taka yfir rekst­ur­inn. Upp úr þeim við­ræðum slitn­aði nýverið og Nes­fiskur í Garði kom inn í mynd­ina.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Konur kvarta undan kynferðislegri áreitni lækna

FréttirKonur kvarta undan kynferðislegri áreitni lækna

Konur krefj­ast aðgerða og breyt­inga á menn­ingu spít­al­ans

„Við segjum nú er komið nóg,“ segir aðgerða­hóp­ur­inn Konur í lækna­stétt sem krefst aðgerða á Land­spít­al­anum. Það sé ekki nóg að bæta verk­ferla heldur þurfi að breyta menn­ing­unni. Nið­ur­stöður rann­sóknar sýna að þriðj­ungur almennra lækna hefur upp­lifað kyn­bundið ofbeldi eða mis­rétti á spít­al­anum. Fæstir leita eftir stuðn­ingi spít­al­ans en þeir sem það gera fá lít­inn sem engan stuðn­ing.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu