Segja frá kynferðislegri áreitni lækna: „Þukl á mínum einkastöðum“

Konur segja frá kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi af hálfu lækna. Þær gagn­rýna við­brögð ann­arra heil­brigð­is­starfs­manna þegar þær reyndu að segja frá.

Segja frá kynferðislegri áreitni lækna: „Þukl á mínum einkastöðum“

Fjöl­margar konur hafa stigið fram og sagt frá kyn­ferð­is­legri áreitni, og jafn­vel mis­notkun, af hálfu lækna að und­an­förnu. Sögurnar koma í kjöl­far þess að Hildur Lilli­endahl birti færslu um slæma reynslu sína af kven­sjúk­dóma­lækni í lok­aða kvenna­hópnum Beauty tips fyrr í mán­uð­inum. Konurnar lýsa óvið­eig­andi snert­ingum, káfi og bein­línis árásum inn á þeirra allra heilög­u­stu svæði. Flestar voru að segja frá upp­lifun sinni í fyrsta skipti, sumar höfðu kvartað til Land­læknis, örfáar höfðu kært. Ekkert mál­anna komst á ákæru­stig. Hátt í fimm­tíu konur segj­ast hafa lent í sama kven­sjúk­dóma­lækn­inum.

Stundin ræddi við nokkrar konur sem deilt hafa reynslu sinni á sam­fé­lags­miðlum. Þær gagn­rýna ekki síst við­brögð ann­arra lækna og heil­brigð­is­starfs­manna þegar þær sögðu þeim frá upp­lifun sinni, en við­brögðin ein­kennd­ust gjarnan af þöggun og lít­il­lækkun. 

Sjúklingar leggi aðra meiningu í hlutina

Hildur Lilli­endahl opn­aði á umræð­una fyrr í mán­uð­inum þegar hún sagði frá slæmri upp­lifun sinni af kven­sjúk­dóma­lækn­inum Auðólfi Gunn­ars­syni. Lýsti hún því meðal ann­ars hvernig hann tók með berum höndum um rassak­inn­arnar á sér til að draga sig nær sér, hvernig hann beygði and­lit sitt niður að kyn­færum sínum og hvernig hann strauk hend­inni niður lærið og sköfl­ung­inn á henni. Fjöl­margar konur stigu fram í kjöl­farið og sögðu frá svip­uðum upp­lif­unum af sama lækni. Þremur árum eftir skoð­un­ina kvart­aði Hildur til Land­læknis, sem kall­aði á eftir skýr­ingum hans.

Auðólfur hefur ekki sömu upp­lifun af atburð­inum og Hildur. Í við­tali við DV í síð­ustu viku þver­tekur hann fyrir að eitt­hvað óeðli­legt hafi átt sér stað. „Ég harma það mjög að upp­lifun hennar hafi verið á þennan hátt og hef beðist afsök­unar á því,“ segir Auðólfur. Hann segir ásak­an­irnar órétt­látar og að hann hafi ekki orðið var við annað en að yfir­gnæf­andi meiri­hluti hafi verið ánægður með sín störf. Hann er nú hættur störfum vegna ald­urs. „En því miður komu upp til­vik þar sem sjúk­lingar lögðu aðra mein­ingu í hlut­ina. Eðli starfs­ins er slíkt að ég efast um að það sé hægt að kom­ast hjá því jafn­vel þó að maður reyni sitt allra besta,“ segir hann í sam­tali við DV. 

„Því miður komu upp til­vik þar sem sjúk­lingar lögðu aðra mein­ingu í hlut­ina.“

Tvisvar verið kærður

Eins og áður segir kvart­aði Hildur undan Auðólfi til emb­ættis Land­læknis. Hún seg­ist vita um tvær aðrar konur sem hafi sömu­leiðis kvartað undan honum til emb­ætt­is­ins. Þá hafa að minnsta kosti tvær konur kært hann til lög­reglu, en bæði mál voru fyrnd.

Óljóst er hversu oft hefur verið kvartað undan Auðólfi til emb­ættis land­læknis því ekki fást upp­lýs­ingar um fjölda kvart­ana á hendur til­tek­inna heil­brigð­is­starfs­manna á grund­velli upp­lýs­inga­laga. Þar vegur þyngra per­sónu­vernd heil­brigð­is­starfs­manna. Stundin sendi fyr­ir­spurn til emb­ættis land­læknis og spurði meðal ann­ars hversu oft hafi verið kvartað vegna kyn­ferð­is­legs áreitis eða ofbeldis á und­an­förnum árum og hvort heil­brigð­is­starfs­maður hafi fengið til­mæli eða áminn­ingu frá lands­lækni vegna þess­ara brota. Í svari frá emb­ætti land­læknis segir að ekki sé hægt að gefa upp­lýs­ingar um svo afmörkuð kvört­un­ar­mál í ljósi per­sónu­verndar. Þetta séu svo fá mál að þau geti verið rakin til ein­stakra heil­brigð­is­starfs­manna. 

Stundin ræddi einnig við Önnu Björgu Ara­dóttur, sviðs­stjóra eft­ir­lits og gæða hjá emb­ætti land­læknis, og spurði meðal ann­ars hvort eitt­hvað ferli færi í gang ef stofn­un­inni ber­ast margar kvart­anir á hendur sama aðila. „Já, en það er þá bara á milli okkar og þess starfs­manns,“ segir Anna Björg og segir það fara eftir eðli mál­anna hvaða ferli fari í gang. Hún getur hins vegar ekki stað­fest hvort eitt­hvað ferli hafi farið í gang í þessum mála­flokki. „Þessi mál eru oft þannig að það stendur orð gegn orði. Þetta eru mjög erfið og flókin mál til að fá hreina nið­ur­stöðu.“

„Æji, lentirðu í Auðólfi?“

Hátt í fimm­tíu konur skrif­uðu ummæli við þráð Hildar á Beauty tips og sögð­ust sömu­leiðis hafa slæma reynslu af Auðólfi. Sjálf segir Hildur um sex­tíu konur hafa haft sam­band við hana og sagst kann­ast við lýs­ingar hennar. Þeirra upp­lif­anir séu ýmist skárri eða mun verri en Hildar. Sögurnar inni á Beauty tips eru allt frá óþægi­legum strokum og þukli til harka­legra vinnu­bragða þar sem hann á að hafa þreifað á brjóstum kvenna með annarri hendi á sama tíma og hann þreifar með fingrum í leggöng­unum með hinni. Flestar upp­lifðu nið­ur­læg­ingu og skömm eftir heim­sókn­ina.

Stundin ræddi við konu sem hefur, líkt og Hildur, slæma reynslu af sama kven­sjúk­dóma­lækni. Hún segir upp­lifun­ina hafa setið lengi í sér og haft djúp­stæð áhrif á hana. Í langan tíma eftir þetta hafi hún til að mynda ekki þorað til kven­sjúk­dóma­læknis. Þegar hún gerði það loks­ins hafi hún spurt aðra lækna hvort þeim finn­ist vinnu­bröð Auðólfs eðli­leg. „Það sem mér finnst verst er að kollegar hans virð­ast hafa vitað af þessu, en eng­inn gerði neitt. Ég hef oft heyrt þessa setn­ingu: „Æji, lent­irðu í Auðólfi?““ segir konan í sam­tali við Stundina. 

Hún segir einnig erfitt að sjá aðrar konur draga upp­lifun hennar í efa því þær hafi ólíka reynslu af Auðólfi. Á DV birt­ist til að mynda sér­stök frétt um 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Konur kvarta undan kynferðislegri áreitni lækna

Konur krefjast aðgerða og breytinga á menningu spítalans
FréttirKonur kvarta undan kynferðislegri áreitni lækna

Konur krefj­ast aðgerða og breyt­inga á menn­ingu spít­al­ans

„Við segjum nú er komið nóg,“ segir aðgerða­hóp­ur­inn Konur í lækna­stétt sem krefst aðgerða á Land­spít­al­anum. Það sé ekki nóg að bæta verk­ferla heldur þurfi að breyta menn­ing­unni. Nið­ur­stöður rann­sóknar sýna að þriðj­ungur almennra lækna hefur upp­lifað kyn­bundið ofbeldi eða mis­rétti á spít­al­anum. Fæstir leita eftir stuðn­ingi spít­al­ans en þeir sem það gera fá lít­inn sem engan stuðn­ing.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár