Safnað fyrir Ágústu Örnu: Lamaðist í slysi á Selfossi

Féll niður um op á neyð­ar­út­gangi á þriðju hæð. Krafta­verk að hún hafi lifað af.

Safnað fyrir Ágústu Örnu: Lamaðist í slysi á Selfossi
Ágústa Arna Stórslas­að­ist þegar hún féll niður um þrjár hæðir á Selfossi í síð­ustu viku.

Konan sem slas­að­ist alvar­lega þegar hún féll niður um op á neyð­ar­út­gangi á þriðju hæð á Selfossi í síð­ustu viku heitir Ágústa Arna Sig­ur­dórs­dóttir. Krafta­verk þykir að Ágústa Arna hafi lifað af en hún höf­uð­kúpu­brotn­aði, kinn­beins­brotn­aði og hlaut slæmt hrygg­brot. Þá skadd­að­ist mænan svo mikið að hún er lömuð frá brjósti. Var henni lengi vel haldið sof­andi í önd­un­ar­vél.

Fjöl­skylda, vinir og vanda­menn Ágústu Örnu hafa hrundið af stað söfnun til þess að aðstoða hana og fjöl­skyldu hennar í þeirri bar­áttu sem framundan. Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar er Ágústa Arna komin úr önd­un­ar­vél og getur tjáð sig við fjöl­skyldu sína sem er hjá henni öllum stundum.

„Ljóst er að hún á langa og erf­iða bar­áttu fyrir höndum sem, auk þess að taka á lík­am­lega og and­lega, mun reyn­ast fjöl­skyld­unni fjár­hags­lega erfið. Margt smátt gerir eitt stórt og því hefur verið stofn­aður styrkt­ar­reikn­ingur fyrir Ágústu Örnu til þess að aðstoða hana og fjöl­skyldu hennar,“ segir í til­kynn­ingu frá aðstand­endum.

Reikn­ings­núm­erið er 0325-13-110203 og er kennitala hennar 270486-3209. Reikn­ing­ur­inn er hjá Arion banka og verður Róbert Sverr­is­son, við­skipta­fræð­ingur hjá bank­anum, fjár­mála­stjóri söfn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár