Sævar Poetrix svarar Jóhannesi Hauki fullum hálsi: „Ég kem frá einstaklega veikri fjölskyldu“

Leik­ar­inn Jóhannes Haukur Jóhann­es­son og Sævar Poetrix rapp­ari deila á Facebook. Sævar skrifar langt bréf til Jóhann­esar þar sem hann lýsir lífs­hlaupi sínu eftir að Jóhannes Haukur gagn­rýndi það sem hann kallar væl.

Sævar Poetrix svarar Jóhannesi Hauki fullum hálsi: „Ég kem frá einstaklega veikri fjölskyldu“
Rappari Sævar Poetrix svarar Jóhann­esi Hauki fullum hálsi.

Rapp­ar­inn Sævar Poetrix ætlar ekki að mæta fyrir dóm­stóla vegna ákæru gegn honum vegna vörslu kanna­bis. Eftir að Vísir greindi frá þessu fyrr í dag brást leik­ar­inn Jóhannes Haukur Jóhann­es­son við með því að segja á Facebook-síðu sinni að hann væri orðin þreyttur á væli „hass­hausa“. DV birti síðan frétt þar sem vísað var í ummæli Jóhann­esar Hauks. Sævar hefur nú svarað Jóhann­esi Hauki, með langri færslu á Facebook þar sem hann gagn­rýnir ummælin og fjallar um sína per­sónu­lega hagi. 

Hlustar ekki á svona væl 

„Um leið og ég sé hóp af hass­reyk­inga­mönnum sem eru pródúk­tí­vir ein­stak­lingar sem leggja eitt­hvað til sam­fé­lags­ins og gera eitt­hvað af viti, þó það sé ekki nema að sinna ein­hverju starfi af svo mikið sem örlitlum metn­aði, þá er ég til í að fara að hlusta á svona mál­flutn­ing. Þangað til það ger­ist, hlusta ég ekki á svona væl. ‪#‎Tell­ingIt­Li­k­eItIs,“ skrif­aði Jóhannes Haukur fyrr í dag og tengdi á frétt Vísis.

Margir gagn­rýndu þessa skoðun og má þar helst nefna Mikael Torfason, rit­höf­und og fyrrum rit­stjóra, sem segir starfs­bræður Jóhann­esar í Banda­ríkj­unum skila sínu þrátt fyrir neyslu.

„Þangað til það ger­ist, hlusta ég ekki á svona væl“

 

Um leið og ég sé hóp af hass­reyk­inga­mönnum sem eru pródúk­tí­vir ein­stak­lingar sem leggja eitt­hvað til sam­fé­lags­ins og...

Posted by Jóhannes Haukur Jóhann­es­son on Wednesday, May 27, 2015

„Ég hef átt stórbrotna ævi“

Neðar í þræð­inum er færsla frá Sævari þar sem hann lýsir fjöl­skyldu­högum sínum fyrir Jóhann­esi. „Sævar heiti ég og lang­aði að kynna mig. Ég hef átt stór­brotna ævi. Ég kem frá ein­stak­lega veikri fjöl­skyldu sem glímdi við alkó­hól­isma, geð­sjúk­dóma, tryll­ings­legt ofbeldi og trú­ar­bragða­of­stæki. Ég las 15.000 bækur frá sjö ára aldri til fimmtán ára. Þá flutti ég að heiman til að spreyta mig ein­sam­all,“ skrifar Sævar.

Því næst lýsir Sævar fram­lagi sínu til sam­fé­lags­ins. Hann seg­ist hafa gefið út plötur, skipu­lagt við­burði, gefið út ljóða­bók, verið rit­stjóri tíma­rits og starfað sem mark­aðs­stjóri sprota­fyr­ir­tækis.

Hefur elskað og hatað

Bréf Sævars til Jóhann­esar Hauks hljómar á köflum eins og rapp­lag. „Hef ferð­ast um ver­öld­ina þvera og endi­langa, umgeng­ist róna og hefð­ar­fólk, tekið meira dóp en þú ímynd­aðir þér að hafa tekið í Svartur á leik. Hugleitt í fleiri klukku­stundir en flestir eyða fyrir framan sjón­varpið. Dílað við fleiri vanda­mál en heróín­sali. Ég get talað flesta undir borðið um heim­speki­stefnur, hug­vís­indi, mál­vís­indi, sál­fræði, trú­ar­brögð, stefnur og strauma í sam­fé­lags­hug­myndum. Tussufær í öðrum umræðu­efnum líka. Allt þetta hef ég gert í skugga flók­innar áfallastreiturösk­unnar eftir æsku sem þú getur ekki gert þér í hug­ar­lund en getur lesið um í fyrstu bók­inni minni sem ég gaf sjálf­stætt út fyrir jól. [...] Flest allt sem ég hef gert hefur verið einka­fram­tak og ég er sjálf­lærður að öllu leyti. Ég hef lifað. Brunnið. Elskað og hatað,“ skrifar Sævar.

„Ég hef lifað. Brunnið. Elskað og hatað.“

Segist ekki vera aðgerðarsinni

Sævar segir að sú ákvörðun hans að mæta ekki í rétt­ar­sal þýði ekki að hann sé aðgerð­ar­sinni. „Ég er ekki hópur af hass­reyk­inga­mönnum. Þetta er minn mál­flutn­ingur og kemur því bara ekk­ert við hvað hópar ókunn­ugs fólks eru að gera. Þetta „væl“ snýst ekki um hvort það sé rétt að reykja kanna­bis eða ekki. Þetta snýst ekki um að ég sé sé eitt­hvað sér­stak­lega harður aðgerðasinni fyrir mál­staðnum að lög­leiða skuli kanna­bis. Þetta snýst ekki um per­sónu­legar skoð­anir fólks á því hvort sé betra að vera edrú eða ekki.

Þetta snýst um að eng­inn ætti að hafa vald til að segja þér hvernig þú átt að haga lífi þínu. Ríkið eða önnur bákn eru ekki heilög, þau hafa ekki fyrir eitt­hvað nátt­úru­lög­mál, rétt á því að stýra hvað þú setur ofan í þig, ryðj­ast inn á heim­ili okkar, hlera sím­anna okkar, fylgj­ast með ferðum okkar eða athöfnum, stjórna mann­legum sam­skiptum okkar, við­skiptum eða sam­fé­lags­legum fram­kvæmdum ein­stak­linga,“ skrifar Sævar.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár