Ragnheiður Elín ávarpar ráðstefnu um vel tengda viðskiptavininn

Opin ráð­stefna í tengslum við aðal­fund Samtaka versl­unnar og þjón­ustu verður haldin á morgun

Ragnheiður Elín ávarpar ráðstefnu um vel tengda viðskiptavininn

Það má segja að í ljósi fréttaum­fjöll­unar sein­ustu daga um íviln­anir til fisk­eld­is­fé­lags­ins Matorku að heiti ráð­stefnu Samtaka versl­unnar og þjón­ustu, þar sem Ragn­heiður Elín Árna­dóttir mun flytja ávarp, sé heldur óheppi­legt. Ráð­stefnan, sem fer fram á morgun á Grand Hótel, ber heitið Vel tengdi við­skipta­vin­ur­inn.

Líkt og víða hefur komið fram gerði iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra samn­ing við félagið í febr­úar sem hljóð­aði upp á 400 millj­ónir króna í formi afslátta af sköttum og opin­berum gjöldum. Helstu eig­endur félags­ins eru væg­ast sagt vel tengdir. Einar Sveins­son er einn helsti eig­andi félags­ins en hann er föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra.

Annað félag, sem er í óbeinni eigu Einars Sveins­sonar, Thorsil, hefur auk þess fengið mikla ívilnun frá íslenska rík­inu, upp á 770 millj­ónir króna.

Þá hefur annar stór hlut­hafi í Matorku gegnt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, Eiríkur Svav­ars­son lög­maður. Hann gegndi veiga­mikilu hlut­verki í InDefence-hópnum ásamt Jóhann­esi Þór Skúla­syni, aðstoð­ar­manni Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Eiríkur veitti atvinnu­vega­nefnd Alþingis einnig umsögn vegna frum­varps um íviln­anir til nýfjár­fest­inga, án þess að nefna tengsl sín við Matorku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár