Píratar samþykkja róttæka sjávarútvegsstefnu og valda titringi

Píratar mæl­ast enn stærstir í skoð­ana­könn­unum. Þeir vilja að afla­heim­ildir verði boðnar upp til leigu á opnum mark­aði og að leigu­tekj­urnar, sem gætu numið allt að 40 millj­örðum á ári, renni í rík­is­sjóð til nýt­ingar í almanna­þágu. Popúl­ismi, segir þing­maður úr stjórn­ar­lið­inu.

Píratar hafa sam­þykkt rót­tæka sjáv­ar­út­vegs­stefnu um að afla­heim­ildir verði boðnar upp til leigu á opnum mark­aði og leigu­gjaldið renni í rík­is­sjóð. „Allur afli skal fara á markað til að gera við­skipti með sjáv­ar­út­vegs­af­urðir eðli­legri og bæta hag sjó­manna, minni sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og ann­ara fyr­ir­tækja sem vinna með afleiddar afurðir,“ segir í til­lögu sem lögð var fram á félaga­fundi þann 8. ágúst síð­ast­lið­inn og sam­þykkt ein­róma í inter­net­kosn­ingu um helg­ina. 

Hér má lesa stefn­una í heild en yrði henni hrint í fram­kvæmd hefði það í för með sér umtals­verðar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi sjáv­ar­út­vegs­mála og myndi hlut­deild almenn­ings í arð­inum af fisk­veiði­auð­lind­inni lík­lega aukast til muna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár