Óttarr vill aukna aðkomu einkaaðila á sviði lyfjamála – Lyfjafræðingar segja erlend lyfjafyrirtæki beita þrýstingi

„Sú umræða er runnin undan rifjum erlendra lyfja­fram­leið­enda sem beita íslenskum umboðs­mönnum sínum í þeirri bar­áttu. LFÍ sér enga ástæðu til að ganga erinda þeirra,“ segir í umsögn Lyfja­fræð­inga­fé­lags Íslands um lyfja­stefnu heil­brigð­is­ráð­herra.

Óttarr vill aukna aðkomu einkaaðila á sviði lyfjamála – Lyfjafræðingar segja erlend lyfjafyrirtæki beita þrýstingi

Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra vill skoða hvort æski­legt sé að heim­ila sölu á til­teknum lausa­sölu­lyfjum í almennum versl­unum á lands­byggð­inni og kanna hag­kvæmni þess að útvista rekstri gagna­grunna og raf­rænni umsýslu lyfja­mála til einka­að­ila. Þá vill hann efla kostn­að­ar­vit­und heil­brigð­is­starfs­fólks og almenn­ings vegna lyfja­kaupa.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í lyfja­stefnu ráð­herra til næstu fimm ára en þings­á­lykt­un­ar­til­lagan er nú til umfjöll­unar í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis. 

Í umsögn Lyfja­fræð­inga­fé­lags Íslands um lyfja­stefn­una er full­yrt að hug­myndir um að fela almennum versl­unum sölu lyfja sé runnar undan rifjum erlendra lyfja­fyr­ir­tækja sem beiti íslenskum umboðs­mönnum sínum í hags­muna­gæslu hér á landi. 

„LFÍ er and­vígt því að sala lyfja verði umfram það sem nú er leyfð í almennum versl­unum. Þetta er sagt með örygg­is­mál og vel­ferð sjúk­linga í huga, ekki við­skipta­hags­muni. Vart hefur verið við umræðu í þjóð­fé­lag­inu um að leyfa slíkt. Sala lyfja á að vera í höndum þeirra sem sér­fræði­þekk­ing­una hafa. LFÍ hefur upp­lýs­ingar um að sú umræða er runnin undan rifjum erlendra lyfja­fram­leið­enda sem beita íslenskum umboðs­mönnum sínum í þeirri bar­áttu. LFÍ sér enga ástæðu til að ganga erinda þeirra,“ segir í umsögn félags­ins.

„Ef opin­berir aðilar hyggj­ast skoða þessar hug­myndir þá vill LFÍ hvetja til þess að reynsla, þróun, t.d. á Norð­ur­löndum, verði skoðuð og einnig skil­yrði, ábyrgð, eft­ir­lit, leyf­is­veit­ingar, þjálfun og leyf­is­gjöld. Fyrst og fremst er þessi skoðun sett fram með vel­ferð og öryggi sjúk­linga í huga. LFÍ bendir á að það þyrfti frekar að skoða umhverfi fyrir lyfja­útibú á lands­byggð­inni þar sem dæmi eru um að útibú frá heilsu­gæslu og lyfja­úti­búum í flokki 3 hafi verið lokað vegna þess að það fékkst eng­inn starfs­maður. Við leysum það ekki með því að flytja dreyf­ing­una í almennar versl­anir sem líka eru að hætta starf­semi úti á lands­byggð­inni.“

Lyfja­fræð­inga­fé­lag Íslands geldur jafn­framt var­hug við hug­myndum um að útvista rekstri lyfja­gagna­grunna. „Við erum ekki viss hvort æski­legt sé að útvista rekstri gagna­grunna. Einnig verður að hafa gild­is­töku nýrra laga um per­sónu­vernd í huga,“ segir í umsögn félags­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár