Ósátt við að Arnþrúður noti húfuna gegn múslimum

Segir útvarps­stjóra Útvarps sögu hafa beðið um húfu til að aug­lýsa

Ósátt við að Arnþrúður noti húfuna gegn múslimum
Arn­þrúður Karls­dóttir Sendir yfir­lýs­ingu með mynd af sér í „búrku“. Mynd: Facebook / Útvarp Saga

Birna Mjöll Atla­dóttir fata­hönn­uður er ósátt við að Arn­þrúður Karls­dóttir, útvarps­stjóri Útvarps sögu, hafi notað húfu sem hún hann­aði til þess að koma á fram­færi yfir­lýs­ingu gegn fjölgun múslima á Íslandi.

„Munu allir útvarps­menn fram­tíð­ar­innar líta svona út?“ spurði Arn­þrúður á föstu­dag­inn á Facebook-síðu Útvarps sögu, líkt og Stundin greindi frá. 

Birna Mjöll greinir frá því að Arn­þrúður hafi sjálf beðið um húfu, en upp­haf­lega beðið hana um rauða húfu, en svo hafi henni snú­ist hugur og hún viljað svarta. Hana not­aði hún síðan sem búrku á með­fylgj­andi ádeilu­mynd.

„Mikið þykir mér þetta leið­in­legt,“ segir Birna Mjöll. „Þetta er saumað sem hlýr og góður skjólfatn­aður. Hún bað um rauða húfu til að aug­lýsa þær. Seinna bað hún um svarta og þá gerði hún þetta.“

Gagnrýni Birnu Mjallar
Gagnrýni Birnu Mjallar Er ósátt við að húfa frá henni sé notuð í póli­tískum til­gangi gegn múslimum.

Birna byrj­aði að sauma lamb­hús­hettur fyrir 23 árum og hefur saumað ýmis klæði undir merk­inu Mjall­ar­föt, en lamb­hús­hett­urnar hennar eru ætl­aðar fyrir veð­ur­fars­lega öfga­kenndar íslenskar aðstæður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Moskumálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár