Örskýringarmyndbönd í tilefni Druslugöngunnar: „Skömmin er ekki þolenda“

Ein­kenn­is­orð druslu­göng­unnar í ár eru „Ég er ekki ofbeldið sem ég varð fyrir” og „Þú ert sama mann­eskjan fyrir mér”.

Örskýringarmyndbönd í tilefni Druslugöngunnar: „Skömmin er ekki þolenda“

Druslu­gangan verður gengin í sjötta sinn þann 23. júlí næst kom­andi. Yfirlýst mark­mið göng­unnar er að útrýma kyn­ferð­is­of­beldi, styðja við þolendur þess og árétta að klæðn­aður, hegðun og fas þol­anda er aldrei afsökun fyrir slíkum glæpum. Í ár er kast­ljós­inu sér­stak­lega beint að mik­il­vægi fyr­ir­byggj­andi aðgerða, for­varna og fræðslu.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá skipu­leggj­endum göng­unnar, en í fyrra tóku um 15 þús­und manns þátt. „Er það von skipu­leggj­enda að enn fleiri sýni þolendum kyn­ferð­is­of­beldis stuðn­ing í ár og gangi fyrir breyttu sam­fé­lagi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Fólkið sem mætir í Druslu­göng­una er þver­skurður íslensks sam­fé­lags. Í hana mætir fólk af öllum kynjum, á öllum aldri og sýna í verki sam­stöðu með þolendum kyn­ferð­is­of­beldis. Með Druslu­göng­unni skap­ast einnig rými til að ræða við fólkið í kringum okkur. Tala við börnin okkar og fræða í nærum­hverfi okkar. Aukin umræða er eina leiðin til að útrýma ofbeld­inu sem hefur þrif­ist í þögn­inni allt of lengi.“

„Þögnin hefur verið rofin
af þús­undum ein­stak­linga“

Fram kemur að mark­miðið sé ekki aðeins að hjálpa þeim sem orðið hafa fyrir ofbeldi heldur einnig að koma í veg fyrir kyn­ferð­is­of­beldi í fram­tíð­inni.

„Á síð­ustu árum hefur orðið gríð­ar­leg vakn­ing í sam­fé­lag­inu um kyn­ferð­is­of­beldi og afleið­ingar þess. Þögnin hefur verið rofin af þús­undum ein­stak­linga sem hafa varpað ljósi á hversu gríð­ar­lega stórt sam­fé­lags­vanda­mál kyn­ferð­is­of­beldi er.“ 

Vona skipu­leggj­endur göng­unnar að á næstu vikum bregð­ist sam­fé­lagið og stjórn­völd við þeirri mein­semd sem kyn­ferð­is­of­beldi er með auk­inni umræðu og aðgerðum. Til að vekja fólk til umhugs­unar hafa verið búin til örskýr­ing­ar­mynd­bönd með það að mark­miði að fræða fólk, breyta orð­ræð­unni og sporna gegn ofbeldi.

„Í mynd­bönd­unum útskýra Þor­steinn Bachman, Dóra Takefusa, Ævar vís­inda­maður, María Guð­munds­dóttir, Stefán Gunnar Sig­urðs­son og Margrét Erla Maack hug­tök sem oft vefj­ast fyrir fólki og fyr­ir­byggja ofbeldi með fræðslu. Reynt er eftir fremsta megni að útskýra hvers vegna bar­áttan gegn kyn­ferð­is­of­beldi er mik­il­væg og reynt að fyr­ir­byggja ofbeldi með fræðslu. Með mynd­bönd­unum vill Druslu­gangan leggja sitt af mörkum til að auka fræðslu og for­varnir og vekja athygli á mik­il­vægi þeirra. Það sem meðal ann­ars er tekið fyrir er staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi, ofbeldi gegn körlum og druslu­smánun.“ 

 

 

 

 

 

 


Ein­kenn­is­orð druslu­göng­unnar í ár eru „Ég er ekki ofbeldið sem ég varð fyrir” og „Þú ert sama mann­eskjan fyrir mér”. Með þessu er tekið á algengri til­finn­ingu þolenda um breytta sín þeirra og ann­arra á sjálf sig eftir að hafa orðið fyrir ofbeldi og ítrekað að skömmin er ekki þolenda að bera.

„Við getum staðið upp og sýnt það í verki að við ætl­um ekki að láta þetta of­beldi yfir okk­ur ganga leng­ur og sýnt þolendum stuðn­ing. Þess vegna boðum við til Druslu­göngu 23. júlí klukkan 14:00 frá Hall­gríms­kirkju. Gengið verður í átt að Aust­ur­velli þar sem við taka ræðu­höld og tón­leikar. Við hvetjum alla til að mæta á sínum for­sendum og ganga fyrir þolendur, aðstand­endur,  sjálfan sig og breyttu sam­fé­lagi,“ segir í til­kynn­ingu skipu­leggj­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár