Óljóst hvernig yfirlýsingum ráðherra verður fylgt eftir

Ólöf Nordal telur ekki óhætt að senda hæl­is­leit­endur til Ítalíu og Ung­verja­lands. Kerfið mun hins vegar halda því áfram þar til tekin verður póli­tísk ákvörðun um annað. Boltinn er hjá inn­an­rík­is­ráð­herra og Alþingi.

Óljóst hvernig yfirlýsingum ráðherra verður fylgt eftir

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið úti­lokar ekki að end­ur­send­ingum hæl­is­leit­enda til Ítalíu og Ung­verja­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar verði hætt. Í ráðu­neyt­inu er nú unnið að söfnun upp­lýs­inga og gagna sem lögð verða til grund­vallar ákvörð­unum um end­ur­send­ingar flótta­fólks. „Meðal ann­ars eru skoðuð sjón­ar­mið og fram­kvæmd ann­arra ríkja, einkum Norð­ur­land­anna, svo og nið­ur­stöður Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Vænta má þess að um eða upp úr mán­aða­mótum verði þess­ari vinnu lokið,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. 

Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hefur lýst því yfir úr ræðu­stól Alþingis að ekki sé öruggt að senda hæl­is­leit­endur til Grikk­lands, Ítalíu og Ung­verja­lands. „Íslend­ingar senda ekki hæl­is­leit­endur til baka til Grikk­lands nú um stundir. Grikk­land er ekki talið öruggt land. Það á einnig við um Ítalíu og Ung­verja­land, þau eru til við­bótar ekki talin örugg lönd. Það er ekki óhætt að senda fólk til baka þangað,“ sagði hún í svari við fyr­ir­spurn um beit­ingu Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar þann 17. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Árið 2010 ákvað dóms­mála- og mann­réttinda­ráð­herra að stöðva end­ur­send­ingar hæl­is­leit­enda til Grikk­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar Ólafar hefur engin sams konar ákvörðun verið tekin um þá hæl­is­leit­endur sem sótt hafa um hæli á Ítalíu og í Ung­verja­landi og eru á ábyrgð þeirra ríkja sam­kvæmt Dyfl­inn­ar­sam­komu­lag­inu. End­ur­send­ingar til Grikk­lands voru stöðv­aðar í kjöl­far til­mæla Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu til Noregs og breyttrar afstöðu norskra stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár