Ólafur Ragnar sagður hafa hótað að loka á lán úr ríkisbankanum

Árni Bergmann, blaða­maður og rit­stjóri, segir að Ólafur Ragnar Grímsson, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, hafi hótað að láta rík­is­bank­ann Lands­bank­ann loka á lána­fyr­ir­greiðslu til Þjóð­vilj­ans ef blaðið færi ekki að vilja hans í inn­an­flokksá­tökum í Alþýðu­banda­lag­inu. Deilur innan flokks­ins voru miklar á þessum árum milli stuðn­ings­manna Ólafs Ragnars og Svavars Gests­sonarog vildu báðir hópar stýra mál­gagni flokks­ins, Þjóð­vilj­anum.

Ólafur Ragnar sagður hafa hótað  að loka á lán úr ríkisbankanum
Sagður hafa beitt rík­is­bank­anum Árni Bergmann segir að Ólafur Ragnar Grímsson, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, hafi hótað að nota póli­tísk völd sín yfir Lands­bank­anum gegn Þjóð­vilj­anum í þeim inn­an­flokksá­tökum sem geisuðu í Alþýðu­banda­lag­inu árið 1988.

„Svo þeir í stjórn Útgáfu­fé­lags­ins ætla að hafa þetta svona. Vita þeir ekki að ég þarf ekki annað en að tala við Lands­bank­ann og þá er þetta búið?“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra og núver­andi for­seti Íslands, að sögn þáver­andi rit­stjóra Þjóð­vilj­ans, Árna Bergmann, í sam­tali við hann árið 1988. 

Með orð­unum vís­aði Ólafur Ragnar til þess að hann gæti í krafti póli­tískra valda sinna yfir þáver­andi rík­is­bank­anum látið loka á lán­veit­ingar til máls­gagns Alþýðu­banda­lags­ins, Þjóð­vilj­ans, ef stjórn Útgáfu­fé­lags Þjóð­vilj­ans tæki að ekki réttar ákvarð­anir að hans mati um hver skyldi vera rit­stjóri blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár