Ökklabrotinn af bardagakappa í steggjun hjá Mjölni

Lárus Ósk­ars­son var ökkla­brot­inn í steggjun og þurfti að fresta brúð­kaupi sínu. Að sögn Lárusar tók Árni „The Iceviking“ Ísaksson fellu á sér. Lárus hefur höfðað skaða­bóta­mál gegn Mjölni og Árna.

Ökklabrotinn af bardagakappa í steggjun hjá Mjölni
Skjáskot Skjáskot af bar­daga Árna Ísaks­sonar við Wayne Murrie árið 2012. Bar­dag­ann allan má sjá hér fyrir neðan.

Lárus Ósk­ars­son fast­eigna­sali var brot­inn á ökkla í steggjun sinni  af Árna „The Iceviking“ Ísaks­syni. Hann hefur stefnt bæði Mjölni, þar sem atvikið átti sér stað, og Árna sjálfum og fer fram á skaða­bætur.

Lárus segir í sam­tali við Stundina að ökkla­brotið hafi haft í för með sér umtals­verðan miska fyrir sig. Brúð­kaup­inu þurfti að fresta og var Lárus frá vinnu í nærri þrjá mán­uði. Hann seg­ist enn ekki búinn að ná sér eftir brotið en atvikið átti sér stað í lok síð­ast­lið­ins ágúst­mán­aðar. Málið verður tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur næst­kom­andi föstu­dag. „Þetta var snemma í dag­skránni svo það er ekki eins og maður hafi verið ofurölvi,“ segir Lárus.

„Innan tveggja mín­úta frá því að ég fór inn í hring­inn var hann búinn að brjóta á mér löpp­ina.“

Beinbrotinn á innan við tveimur mínútum

Lárus segir að ferð í Mjölni hafi verið eitt það fyrsta á dag­skrá í steggj­un­inni. Hann hafi þó ekk­ert vitað þar sem steggj­unin var óvissu­ferð líkt og gengur og ger­ist. „Þar í Mjölni tekur á móti okkur ein­hver starfs­maður hjá Mjölni sem fer með mig í hring­inn. Innan tveggja mín­úta frá því að ég fór inn í hring­inn var hann búinn að brjóta á mér löpp­ina. Það var ökklinn sem brotn­aði. Þetta var mjög slæmt brot, ég er með plötu í löpp­inni með fjórum skrúfum. Svo er ég líka með tvo nagla í löpp­inni. Hann tók ein­hverja fellu á mig þannig að það sner­ist illa upp á fót­inn, sem marg­brotn­aði,“ segir Lárus. Hann segir að bein­brotið hafi verið veru­lega sárs­auka­fullt.

Með þeim betri á Íslandi í MMA

Ekki náð­ist í Árna Ísaksson við vinnslu fréttar. Árni er utan Gunnars Nelson meðal bestu Íslend­inga í MMA, eða blönd­uðum bar­daga­listum. Hann var enn fremur Íslands­meist­ari í ólymp­sku boxi árið 2009. Hann er meðal kenn­ara í Mjölni sam­kvæmt heima­síðu félags­ins.

„Fyrir mér er þetta algjör­lega frá­leitt mál“

Haraldur Dean Nelson, fram­kvæmda­stjóri Mjölnis, vildi sem minnst tjá sig um málið í sam­tali við Stundina. „Við lítum svo á að við höfum ekki aðkomu að mál­inu. Þarna er um að ræða stráka sem koma og biðja um að fá ein­hvern til að steggja sig. Við höfum aldrei verið með svona steggjarnir á okkar vegum. Þeir koma og leigja sal­inn af okkur. Fyrir mér er þetta algjör­lega frá­leitt mál,“ segir Haraldur.

Lárus og eiginkona hans
Lárus og eig­in­kona hans Lárus ætl­aði að gifta sig í sept­em­ber en þurfti að fresta því fram í nóv­em­ber vegna fót­brots­ins.

Þurfti að blása af brúðkaupið

Lárus segir að ökkla­brotið haft í för með sér tals­verðan miska. „Ég var frá vinnu heil­lengi, tvo eða tvo og hálfan mánuð. Maður gat nátt­úr­lega lítið hreyft sig. Ég átti að gifta mig 13. sept­em­ber og þetta ger­ist 27. ágúst, minnir mig. Það þurfti að blása það allt af og end­ur­skipu­leggja,“ segir Lárus. Hann segir að brúð­kaupið hafi verið búið að skipu­leggja í þaula á þessum tíma­punkti. „Það var búið að eyða alveg gríð­ar­lega miklu púðri í þetta. Konan mín er fædd og upp­alin í Svíþjóð þannig að það var fólk að koma þaðan sem var búið að bóka flug. Við höfðum fengið veislu­stjóra og tón­list­ar­at­riði, og allt þetta,“ segir Lárus. Hann og kona hans giftu sig þó að lokum í nóv­em­ber.

„Ég að láta hengja mig fyrir eitthvað myndband“

Lárus gagn­rýnir við­brögð Árna strax í kjöl­far þess að hann var tek­inn niður. „Eftir á að hyggja er ég mjög ósáttur við þetta því þetta er kenn­ari þarna hjá Mjölni sem brýtur á mér löpp­ina. Þegar ég fell þarna niður þá segi ég við hann að hann hafi brotið á mér löpp­ina. Hann var sjokker­aður, því þetta er örugg­lega góður drengur, en það var röð hluta þarna sem manni finnst mjög skrítin. Hann spyr strák­anna sem voru með mér hvort að þeir vilji það ekki á mynd­bandi þegar hann er að hengja mig. Ég er þarna í ein­hverju sjokki og veit ekk­ert hvað ég á að gera, hvort ég sé fót­brot­inn eða hvað, þá er ég að láta hengja mig fyrir eitt­hvað mynd­band,“ segir Lárus. Með öðrum orðum þá tók Árni Lárus í háls­tak eftir að hann var búinn að brjóta á sér fót­inn og lét hann gef­ast upp. „Dag­skráin hélt bara áfram,“ segir Lárus.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár