Ritstjóri nýs fríblaðs á Íslandi fagnar lögum gegn femínisma, kynvillu og fóstureyðingum

Guð­mundur Örn Ragn­ars­son prestur er rit­stjóri Betra lands sem dreift var á heim­ili flestra lands­manna í gær. Hann er ánægður með Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta fyrir að setja lög „sem fara gegn femín­isma, gegn kyn­villu, gegn fóst­ur­eyð­ingum“.

Ritstjóri nýs fríblaðs á Íslandi fagnar lögum gegn femínisma, kynvillu og fóstureyðingum
Rit­stjóri Guð­mundur Örn Ragn­ars­son er rit­stjóri Betra lands.

Ekki er hægt að segja annað en blaða­út­gáfa á Íslandi sé í blóma með öllum þeim frí­blöðum sem koma inn um lúgur lands­manna um þessar mundir. Nú hefur kristi­lega sjón­varps­stöðin Omega hafið frídreif­ingu á blaði sem prentað er í 117 þús­und ein­tökum. Blaðið nefn­ist Betra land og er prest­ur­inn Guð­mundur Örn Ragn­ars­son rit­stjóri, sem jafn­framt er for­stöðu­maður Sam­fé­lags trú­aðra, sem heldur úti síð­unni Biblebeli­evers.is. Í blað­inu má meðal ann­ars finna grein þar sem Vladimir Pútín er hrósað fyrir loft­árásir í Sýrlandi og honum hampað sem „nútíma kross­fara“.

 

Leiðari blaðs­ins fjallar um þá óvissu­tíma sem nú standa yfir og eru les­endur ein­dregið hvattir til að horfa á dag­skrá Omega. „Það er ánægju­legt að hafa tæki­færi til þess að senda inn á heim­ili lands­manna blaðið Betra land, sem við trúum að eigi eftir að verða til mik­illar bless­unar fyrir marga, bæði upp­örvun og trú­ar­styrkur á þessum tímum sem við lifum á þar sem mikil óvissa er ríkj­andi og margir hlutir eiga sér stað sem er erfitt að hafa stjórn á.

Eiturlyf flæða inn í landið og leggja að velli marga, jafnt unga sem eldri. Það ríkir ráð­leysi um hvernig sé hægt að tak­marka þetta eða stöðva [...],“ segir í leið­ara Betra lands.

Í sam­tali við Stundina segir Guð­mundur Örn að blaðið muni koma út í það minnsta næstu tvo mán­uði. Ljóst er að prentun og dreif­ing á blaði í svo miklu upp­lagi er ekki ódýr. „Jú, jú, þetta kostar pen­inga, þetta er svipað brot og Bleikt,“ segir Guð­mundur Örn og vísar til nýs prent­blaðs á vegum vef­síð­unnar Bleikt.is. Hann segir að erfitt hafi reynst að fá aug­lýs­ingar í blaðið. „Það hefur ekki gengið vel hjá okkur á Omega að fá inn aug­lýs­ingar. Aug­lýsendur eru oft hræddir við trú­málin, að þeir verið bendl­aðir við það að þeir séu svona heit­trú­aðir eins og við. Eins og er þá er þetta gefið út fyrir styrkt­arfé alveg eins og sjón­varps­stöðin. Við höfum aldrei verið á mótið því að hafa aug­lýs­ingar,“ segir Guð­mundur Örn.

Hrifinn af Pútín                                                                                       

Ein greinin er þýdd frétt frá Assist News um sam­starf rúss­nesk Rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar við Vladimir Pútín vegna loft­árása þess síð­ar­nefnda á Sýrlandi. Í þess­ari frétt Betra lands er Pútín lýst sem nútíma kross­fara og síð­asta vernd­ara krist­innar trúar. „Það er e.t.v. kald­hæðn­is­legt, að Pútín hefur tekið við stöðu nútíma kross­fara, og sett Rússland í hlut­verk síð­asta verj­anda Krist­innar trúar,“ segir í frétt­inni.

Greinin um Pútín
Greinin um Pútín
 

Guð­mundur Örn rit­stjóri seg­ist taka undir hvert orð í grein­inni. „Já, ég er sam­mála þessu. Ég er búinn að gera miklar rann­sóknir á vef­síðum, meira að segja amer­ískum, þar sem fjallað er um Pútín og sögu hans. Vest­ur­lönd hafa verið skept­ísk á Pútín og hvort það geti verið að honum hafi verið snúið til krist­innar trúar. Ég get ekki séð annað en eftir mínar rann­sóknir en að hann hafi snú­ist. Við hefðum getað verið með miklu meira um Pútín í blað­inu og kannski gerum við það. Við höfum gert það á stöð­inni,“ segir Guð­mundur Örn.

Hann segir að Banda­ríkin og Rúss­lands hafi skipt um hlut­verk sem sið­ferð­is­post­ular. „Nú eru Banda­ríkin að brjóta niður trúna, styðja kyn­villu og fóst­ur­eyð­ingar og allt það. Pútín gerir allt öfugt. Hann setur lög sem fara gegn femín­isma, gegn kyn­villu, gegn fóst­ur­eyð­ingum. Allt öfugt, en þessi lög voru við lýði í Banda­ríkj­unum,“ segir Guð­mundur Örn.

Rússland hóf nýverið loft­árásir í Sýrlandi en Pútín er helsti banda­maður Bashar al-Assad. Greint hefur verið frá því að meiri­hluti árásanna, um 90 pró­sent, hefur verið beint að upp­reisn­ar­mönnum sem berj­ast fyrir lýð­ræði. Íslamska ríkið hefur að mestu sloppið við loft­árásir Rússa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár