Neyðarástand í húsnæðismálum hælisleitenda

Útlendinga­stofnun hefur ekki yfir nægu húsnæði að ráða til að mæta fjölgun hælis­leitenda hér á landi. Stjórn­völd verða að gera viðeigandi ráðstafanir, segir sviðs­stjóri hjá Rauða krossinum. Kópa­vogsbær hefur ekki svarað erindi Útlendinga­stofnunar um fjölda­hjálparstöð í Kópavogi og innan­ríkis­ráðuneytið svarar engu um móttöku­miðstöð sem búið er að lofa á þessu ári.

„Við erum í stöðugum vandræðum og erum alltaf að elta skottið á okkur,“ segir Rósa Ragnars­dóttir, verkefna­stjóri í móttöku­teymi hjá Útlendinga­stofnun, í samtali við Stundina um húsnæðismál handa hælis­leitendum hér á landi.

Atli Viðar Thorstensen, sviðs­stjóri hjálpar- og mannúðar­sviðs Rauða krossins, segir ekki til nægjanlega mörg rými til að mæta fjölgun hælis­leitenda undan­farið. „Fyrir­sjáanlegt er að fjöldinn verði enn meiri á þessu ári og því er ljóst að stjórn­völd verða að gera viðeigandi ráðstafanir til að standa undir þeim skuld­bindingum sem gerðar eru til stjórn­valda að þessu leyti,“ segir Atli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár