Neitar að svara þingnefnd um „hið svokallaða „lekamál““

Hanna Birna vill aftur á þing en ætlar ekki að gera hreint fyrir sínum dyrum á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar

Neitar að svara þingnefnd um „hið svokallaða „lekamál““

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, vill setj­ast aftur á þing í apríl en neitar hins vegar að koma á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis til að svara spurn­ingum um leka­málið og fram­göngu sína gagn­vart þing­heimi. Þetta kemur fram í bréfi sem nefnd­inni barst í dag.

Eins og var marg­stað­fest, bæði með dómum hér­aðs­dóms og Hæsta­réttar í fyrra og áliti umboðs­manns Alþingis í jan­úar, fór Hanna Birna ítrekað með rangt mál þegar rætt var um leka­málið á Alþingi.

Ögmundur Jónasson, for­maður nefnd­ar­innar, sendi Hönnu Birnu bréf í jan­úar síð­ast­lið­inn í kjöl­far þess að umboðs­maður Alþingis kynnti nefnd­inni álit sitt um að ráð­herr­ann hefði mis­notað vald sitt með ítrek­uðum afskiptum af lög­reglu­rann­sókn leka­máls­ins og störfum Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra.

Þing­nefndin hefur beðið eftir svari vikum saman en RÚV greindi frá því í dag að Hanna Birna hefði svarað bréf­inu og afþakkað fund­ar­boðið. 

Millj­óna­kostn­aður 
Hanna Birna tók sér leyfi frá þing­störfum í lok síð­asta þings og þiggur nú bið­laun ráð­herra, en þau eru jafnhá ráð­herra­launum eða um 1,1 milljón á mán­uði. Í ljósi þess að Hanna Birna er í fríi þarf einnig að greiða vara­þing­manni hennar, Sigríði Á. Andersen, þing­far­ar­kaup. Þannig hefur Alþingi greitt tvö­föld þing­laun und­an­farna mán­uði vegna leyfis Hönnu Birnu.

Fram kom þann 10. mars síð­ast­lið­inn að inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefði greitt mark­aðs­stof­unni Argus ehf. 2,4 millj­ónir króna vegna ráð­gjafar í tengslum við leka­málið á árinu 2014. Hjálpaði fyr­ir­tækið Hönnu Birnu að bæta ímynd sína í fjöl­miðlum. Lög­fræði­ráð­gjöfin sem fyrr­ver­andi ráð­herra fékk var einnig kostuð af skatt­greið­endum, en lög­manns­stofan LEX fékk rúm­lega eina milljón króna fyrir þjón­ustu sína. Alls nam beinn kostn­aður ráðu­neyt­is­ins vegna aðkeyptrar ráð­gjafar vegna leka­máls­ins tæpum 3,5 millj­ónum króna.

Ef meta ætti fjár­hags­legan kostnað leka­máls­ins er þetta auð­vitað aðeins brota­brot af honum, ekki síst þegar litið er til dóms­mála og rann­sóknar lög­reglu, rík­is­sak­sókn­ara, umboðs­manns og Per­sónu­verndar. 

Svo­kallað „leka­mál“
Í bréf­inu sem Ögmundur sendi fyrir hönd stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í jan­úar kom fram að mörgum þing­mönnum hefðu þótt full­yrð­ingar hennar um leka­málið í þing­sal mót­sagna­kenndar og ekki geta stað­ist. Í svar­bréfi sínu segir Hanna Birna meðal ann­ars: „Þar sem mér hefur nú borist ítrekun þar sem óskað er svars eigi síðar en 17. mars nk. og ég kem ekki til þing­starfa fyrr en eftir miðjan apríl, vísa ég til þeirra upp­lýs­inga og gagna sem þegar liggja fyrir í umræddu máli.“ 

Þá seg­ist hún „óska nefnd­inni vel­farn­aðar í sínum störfum“ og talar um leka­málið innan gæsalappa sem „hið svo­kall­aða „leka­mál““.  Þannig skrifar hún í upp­hafi bréfs­ins: „Vísað er til bréfs stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, und­ir­ritað af Ögmundi Jónassyni, þar sem mér, sem fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, er boðið að koma á fund nefnd­ar­innar til að gera grein fyrir sýn minni á hið svo­kall­aða „leka­mál“.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár