Ingibjörg Melkorka var nýorðin 17 ára þegar hún lést eftir E-töflu

Lést eftir að hafa tekið inn eina og hálfa E-töflu. Fjöl­skylda stúlkunnar vonar að and­lát Ingi­bjargar Melkorku verði öðrum til aðvör­unar. Bæna­stund verður haldin í Akra­nes­kirkju á morgun.

Ingibjörg Melkorka var nýorðin 17 ára þegar hún lést eftir E-töflu

Stúlkan sem lést í kjöl­far þess að hafa neytt eit­ur­efn­is­ins E-pillu aðfar­arnótt síð­ast­lið­ins sunnu­dags hét Ingi­björg Melkorka Ásgeirs­dóttir. Hún var búsett á Akranesi er nýlega orðin 17 ára. Frá þessu er sagt á vef Skessu­horns. Þar er jafn­framt birt til­kynn­ing frá fjöl­skyldu Ingi­bjargar Melkorku. 

Ingi­björg Melkorka tók inn eina og hálfa E-töflu. Eftir það sofn­aði hún og vakn­aði ekki aftur. Hún var flutt á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans við Hring­braut þar sem hún var úrskurðuð látin aðfar­arnótt þriðju­dags­ins 2. júní. Aðstand­endur Ingi­bjargar Melkorku vilja koma því á fram­færi að þetta var í fyrsta og eina skipti sem vitað er að hún hafi neytt þess­ara eit­ur­efna sem E-pillur eru. Eitt skipti getur því verið nóg til að hafa þessar hörmu­legu afleið­ingar. „Von okkar er að þessum skila­boðum verði komið út í sam­fé­lagið sem víð­ast, öðrum til aðvör­unar um þá dauð­ans alvöru sem neysla vímu­efna getur haft,“ segir í yfir­lýs­ingu frá aðstand­endum.

Ingi­björg lætur eftir sig for­eldra, fjórar systur og einn bróður. Hún var nem­andi í Mennta­skóla Borg­ar­fjarðar síð­ast­liðið skólaár en stund­aði áður nám í Brekku­bæj­ar­skóla á Akranesi og í Heið­ar­skóla í Hval­fjarð­ar­sveit. Bæna­stund verður í Akra­nes­kirkju á morgun, föstu­dag­inn 5. júní klukkan 17:30.

„Von okkar er að þessum skila­boðum verði komið út í sam­fé­lagið sem víð­ast, öðrum til aðvör­unar um þá dauð­ans alvöru sem neysla vímu­efna getur haft.“ 

„Ingi­björg Melkorka hafði látið í ljós þá ósk, að ef til þess kæmi, yrði hún líf­færa­gjafi. Við því var orðið og er það okkur nokkur huggun á erf­iðum stundum að líf hennar geti orðið öðrum til aðstoðar. Við fjöl­skyldan viljum þakka sam­hug og vin­ar­þel sem okkur hefur verið sýnt á erf­iðum stundum und­an­farna daga. Jafn­framt viljum við láta þess getið að við kjósum að tjá okkur ekki nánar við fjöl­miðla að sinni og óskum eftir að það verði virt og því sýndur skiln­ingur,“ segir jafn­framt í til­kynn­ingu frá fjöl­skyldu Ingi­bjargar Melkorku. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár