Mun ekki gefa börnum nammi framar

Hafliði Ragn­ars­son, marg­verð­laun­aður konfekt­gerð­ar­maður, seg­ist ekki ætla að bjóða börnum að smakka konfektið aftur. Brá við að vera kall­aður „barna­perri“ í fjöl­miðlum.

Mun ekki gefa börnum nammi framar

„Ég er búinn að banna starfs­fólk­inu að gefa börn­unum nammi og mun ekki gera það sjálfur í fram­tíð­inni heldur,“ segir Hafliði Ragn­ars­son bak­ari og konfekt­gerð­ar­maður í sam­tali við Stundina. „Það er greini­lega orðið hættu­legt að vera góð­hjart­aður.“ 

Stundin sagði frá því í síð­ustu viku að lög­reglu hefðu borist tvær til­kynn­ingar vegna karl­manns sem gæfi börnum sæl­gæti í Graf­ar­holti. Rætt var við Auði Hann­es­dóttur, móður sex ára stúlku sem hafði þegið sæl­gæti frá manni nálægt frí­stunda­heim­il­inu Stjörnu­landi þar síð­asta þriðju­dag. Auði var mjög brugðið vegna atviks­ins og lét starfs­fólk frí­stunda­heim­il­is­ins strax vita. Í kjöl­farið var sendur póstur á alla for­eldra. Nú hefur komið í ljós að málið var í raun mjög sak­laust en um var að ræða marg­verð­laun­aðan konfekt­gerð­ar­mann, Hafliða Ragn­ars­son, sem þekkti stúlku í hópnum. Hann segir börnin hafa komið að sér er hann gekk inn á vinnu­stað­inn. „Krakk­arnir nálg­uð­ust mig, en ekki öfugt. Þau voru for­vitin og spurðu hvað ég væri að gera. Ég sagð­ist vera að búa til súkkulaði og þá báðu þau mig um smakk. Ég hef nú leyft þeim að smakka áður og kona mín sömu­leiðis. Í þessu til­viki þekkti ég stelpu í hópnum en hún er dóttir frænku minnar. Þannig ég gaf þeim eitt­hvað smá­ræði sem ég var með á borð­inu hjá mér,“ útskýrir Hafliði. Hann segir börn skilj­an­lega sýna konfekt­gerð­inni mik­inn áhuga. Sjálfur hafi hann sníkt nammi í nammi­verk­smiðj­unum á þessum aldri. „Þau gera mjög mikið dyraat hjá okkur og eru for­vitin. Bara eins og börn eru.“

„Krakk­arnir nálg­uð­ust mig, en ekki öfugt. Þau voru for­vitin og spurðu hvað ég væri að gera.“


Fjölskyldunni mjög brugðið

Pressan sagði frá mis­skiln­ingum í gær­kvöldi undir fyr­ir­sögn­inni „„Barna­perr­inn“ í Graf­ar­holti reynd­ist vera góð­hjart­aður 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár