Leita enn að Herði: „Við erum engu nær“

Hörður Björns­son er enn týndur en leit hefur staðið yfir frá því á mið­viku­dag. Síðast sást til hans við Laug­ar­ás­veg. Lög­reglan telur ólík­legt að hann sé hættu­legur sjálfum sér.

Leita enn að Herði: „Við erum engu nær“
Hörður Björns­son Síðast er vitað um ferðir hans á Laug­ar­ás­vegi klukkan fjögur aðfara­nótt mið­viku­dags. Mynd: Lögreglan

Enn stendur yfir leit að Herði Björns­syni sem týnd­ist aðfar­arnótt þriðju­dags. Hörður er 25 ára gam­all og 188 cm á hæð, grannur og með hvítt sítt hár og rautt skegg. Talið er að hann sé klæddur í dökkan jakka, svartar buxur og gráa peysu. Lög­reglan hefur hvatt almenn­ing sér­stak­lega til að leita vel í og á sínum eignum, svo sem húsum, skúrum, bílum og görðum.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lýsti fyrst eftir Herði síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, en síð­ast var vitað af honum á Laug­ar­ás­vegi klukkan fjögur aðfar­arnótt mið­viku­dags. Þá var hann skó­laus.

Stundin ræddi við Sig­ur­björn Jónsson aðal­varð­stjóra hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem sagði að áherslan sé fyrst og fremst lögð á leit í Laug­ar­dalnum. „Við leggjum áherslu á Laug­ar­dal­inn og svæðið þar í kring,“ segir Sig­ur­björn. Ábend­ingar hafa engu að síður borist víða að og er þeim öllum fylgt eftir. Það er því búið að fara um allt höf­uð­borg­ar­svæðið að leita að honum. „Við erum engu nær,“ segir Sig­ur­björn.

 

Þar sem Hörður var skó­laus þegar síð­ast sást til hans vakna spurn­ingar um hvers vegna svo sé. Sig­ur­björn segir það ekki endi­lega til marks um and­legt ástand hans. Hann hafi verið hjá vinum sínum í íbúð í Laug­ar­ás­hverf­inu þegar hann hvarf aðfar­arnótt mið­viku­dags. Þá telur Sig­ur­björn einnig ólík­legt að Hörður sé hættu­legur sjálfum sér. „Hann fór bara út og hefur gleymt að fara í skóna, ein­hverra hluta vegna. Ég hef ekki skýr­ingar á því,“ segir Sig­ur­björn.

Þeir sem telja sig hafa séð Hörð eru beðnir um að hafa sam­band við lög­reglu í síma 843-1106.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár