Matarspjall Eiríkur Örn Norðdahl: Asísk matargerð kveikti delluna

Rit­höf­und­ur­inn Eiríkur Örn Norðdahl sendi fyrir skemmstu frá sér Plokk­fisk­bók­ina sem inni­heldur ríf­lega þrjá­tíu plokk­fisks­upp­skriftir. Hann kann þó að meta – og elda – ýmis­legt annað.

Matarspjall Eiríkur Örn Norðdahl: Asísk matargerð kveikti delluna

„Það var asísk mat­ar­gerð sem kveikti í mér dell­una,“ svarar Eiríkur Örn spurður hvaðan þessi mat­ar­ást sé upp­runnin. „Þegar við fjöl­skyldan stungum af í fyrra­vetur þá völdum við í Víetnam meðal ann­ars fyrir mat­ar­gerð­ina.“

Hvað er svona heill­andi við hana? „Hún er svo fersk. Ég er almennt hrif­inn af þessu suð­aust­ura­síska og kúnstinni að balansera sætt, súrt og sterkt – víetnamska er tals­vert mild­ara en til dæmis tælenska og minna eldað. Súpurnar eru stapp­fullar af ferskum kryddum. Ekki síst þegar maður eldar þær úti. Hér heima eru krydd­jurt­irnar svo dýrar að ef maður ætl­aði að elda það eins og það á að vera myndi skálin sjálf­sagt kosta eins og margra ára krabba­meins­með­ferð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár