Lýsir úthlutun lóðar til einkasjúkrahúss sem atvinnuþróunaraðstoð Mosfellsbæjar við huldumenn með óljósa eignastöðu

Fulltrúi Íbúa­hreyf­ing­ar­innar í Mos­fellsbæ gagn­rýnir harð­lega áform um einka­sjúkra­hús.

Lýsir úthlutun lóðar til einkasjúkrahúss sem atvinnuþróunaraðstoð Mosfellsbæjar við huldumenn með óljósa eignastöðu

Fyrsti fundur bæj­ar­stjórnar Mos­fells­bæjar eftir sum­ar­frí stendur nú yfir og hefur Sigrún Páls­dóttir, full­trúi Íbúa­hreyf­ing­ar­innar bókað harða gagn­rýni á vinnu­brögð full­trúa D- og S-lista í bæj­ar­ráði vegna úthlut­unar lóða til einka­sjúkra­húss og hót­els með þyrlu­palli. 

„Bæj­ar­full­trúi Íbúa­hreyf­ing­ar­innar átelur þau vinnu­brögð full­trúa D- og S-lista í bæj­ar­ráði Mos­fells­bæjar harð­lega að hafa í sum­ar­fríi bæj­ar­stjórnar úthlutað óþekktum aðilum í trássi við eðli­lega verk­ferla sam­tals hund­rað og tutt­ugu þús­und m2 af landi Mos­fells­bæjar til eignar undir þrjá­tíu þús­und m2 einka­sjúkra­hús og -hótel með þyrlu­palli,“ segir í bók­un­inni sem Stundin hefur undir höndum.

Fram kemur að hand­höfum leyf­ist að veð­setja lóð­irnar að fengnu óskil­greindu leyfi Mos­fells­bæjar og einnig kaup­rétt­inn. Engin gögn hafi fylgt mál­inu sem bendi til for­vinnu af neinu tagi.

„Engin áreið­an­leika­könnun var gerð á því hvort um væri að ræða aðila sem væru trausts­ins verðir; engin grein­ar­gerð við­skipta­banka um fjár­hags­lega burði þeirra til að ráð­ast í verk­efni af stærð­argráðunni 50 millj­arðar króna; engir útreikn­ingar á arð­semi verk­efn­is­ins fyrir Mos­fell­inga; engar upp­lýs­ingar um umhverf­is­á­hrif; ekk­ert sam­ráð við heil­brigð­is­yf­ir­völd, heldur ekki íbúa og engin fag­leg álit stjórn­sýslu­stofn­ana. Lýð­ræð­is­legum stjórn­sýslu­þætti und­ir­bún­ings var hrein­lega sleppt,“ segir í bók­un­inni.

Þá kemur fram að við lestur samn­ings­ins vakni grunur um að aðil­arnir sem um ræðir hafi ekki fjár­magn til að greiða gatna­gerð­ar­gjöld nema þeir fái leyfi til að veð­setja landið.

„Landið er lík­lega það verð­mikið að þeir geta líka tekið lán út á það til að fjár­magna kostnað við að gera það bygg­ing­ar­hæft. Að því loknu geta þeir veð­sett kaup­rétt­inn. Samn­ing­ur­inn bendir til þess að þetta séu aðilar með hafa hug­mynd en lítið sem ekk­ert eigið fé. Það má telj­ast með öllu óábyrgt af bæj­ar­ráði að afhenda óþekktum, erlendum aðilum verð­mætar eignir sveit­ar­fé­lags­ins. Sá mögu­leiki er raun­veru­legur að landið kom­ist í hendur þriðja aðila í gegnum veð­setn­ingar og að sá aðili vilji síðan koma land­inu í verð fyrir sem mestan pen­ing, án til­lits til hags­muna sveit­ar­fé­lags­ins. Það gengur þvert á stefnu sveit­ar­fé­laga að selja land sem þau eiga.“

Telur full­trúi Íbúa­hreyf­ing­ar­innar að samn­ing­ur­inn verði vart skil­inn öðru­vísi en sem atvinnu­þró­un­ar­að­stoð Mos­fells­bæjar við aðila sem bæj­ar­ráð viti ekki hverjir eru og hafi ekki sýnt fram á að hafa neitt eigið fé, hvað þá trú­verð­ug­leika eða burði til að standa í fram­kvæmdum upp á 50 millj­arða. Í því sam­bandi veki athygli að þeir þurfi ekki að fram­vísa við­skipta­á­ætlun fyrr en 1. des­em­ber 2017. „Hér er um að ræða dýr­mætt land í eigu Mos­fells­bæjar sem látið er af hendi gegn vægu verði og fyrir starf­semi sem gengur þvert á vilja þjóð­ar­innar og stefnu stjórn­valda í heil­brigð­is­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár