Lögreglan tók símann og eyddi upptökum

Eigandi sím­ans læstur inni í fanga­klefa á meðan löggan athafn­aði sig. Lög­reglan á Nes­kaup­stað krafin um 800 þús­und krónur. „Lög­reglan réð­ist inn á mitt einka­líf.“

Lögreglan  tók símann og  eyddi upptökum
Krefst bóta Emil Thoraren­sen á Eski­firði sættir sig ekki við að lög­reglan eyddi mynd­bands­upp­tökum úr síma hans. Hann hefur krafið ríkið um bætur.

Emil Thoraren­sen, 29 ára Esk­firð­ingur, hefur krafið emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Austur­landi um bætur vegna þess að lög­reglu­maður emb­ætt­is­ins, Óskar Þór Guð­munds­son, tók síma hans ófrjálsri hendi og eyddi út mynd­bandi. Atvikið átti sér stað á tjald­stæð­inu í Nes­kaup­stað 12. júlí í sumar þegar hátíðin Eistna­flug stóð sem hæst. Tveir lög­reglu­menn, karl og kona, komu á vett­vang þar sem Emil og félagar hans voru og hófu afskipti af þeim. Emil tók upp á sím­ann sinn og mynd­aði lög­reglu­menn­ina. Karl­mað­ur­inn brást illa við.  

„Hann bann­aði mér að taka mynd­bands­upp­töku af sér, á sím­ann minn.  Hann ítrek­aði bannið nokkrum sinnum og gerði lítið úr mér; spurði hvort ég væri ánægður með víd­eóið og svo fram­vegis,“ segir Emil. 

Reiður lögreglumaður

Emil seg­ist hafa haldið áfram að taka upp á vett­vangi og lýsti því fyrir lög­regl­unni að hann væri í fullum rétti. Hann minnti lög­regl­una á atvik í Þing­holt­unum í Reykja­vík þar sem stór rúta var að snúa við og lög­regla var 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár