Lífguð við eftir hálftíma á kafi í sjó

Einstæð móðir sem lenti í Reykja­vík­ur­höfn komin til heilsu. Var í hjarta­stoppi þegar henni var bjargað. Kæld niður og haldið sof­andi. Batinn gengur krafta­verki næst.

Lífguð við eftir hálftíma á kafi í sjó
Slys­stað­ur­inn Fáir reikn­uðu með að konan myndi lifa slysið af. Mynd: Google earth

Það þykir ganga krafta­verki næst að kona sem lenti í Reykja­vík­ur­höfn um miðjan jan­úar skuli vera komin til með­vit­undar. Bifreið kon­unar hafn­aði í höfn­inni og sökk til botns síð­degis 18. jan­úar. Gestir á veit­inga­staðnum Höfninni sáu þegar atvikið varð á Miðbakka. Skott­lokið á bílnum var opið þegar hann fór fram af bryggj­unni. Það tók kaf­ara hálf­tíma að ná kon­unni úr bílnum. Hún var þá með­vit­und­ar­laus. Það tókst að koma hjarta hennar af stað en lík­legt þótti að hún hefði hlotið var­an­legan skaða af. Hún var kæld niður og henni haldið sof­andi í 48 klukku­stundir á meðan hita­stig hennar var smám saman hækkað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lífsháski

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár