Þrír kajakmenn lentu í hafinu í ofsaveðrinu

Pétur Gíslason hefur stundað kajak­róður í 20 ár. Hann hefur róið á hættulegustu hafsvæðum við Íslands. Eitt sinn lenti hann í háska við strönd Skotlands.

Undir Hornbjargi
Undir Horn­bjargi Pétur Gíslason hefur nokkrum sinnum róið fyrir Horn. Þessi mynd er tekin í renni­blíðu eins og sjá má. Mynd: Pétur Gíslason. Mynd: Pétur Gísalson

„Í öllu mínu útivistaræði hef ég aldrei komist eins nálægt nátt­úrunni. Ég á einhverja fortíð sem sjómaður en þetta snýst ekki um það. Þetta sport slær allt annað út,“ segir Pétur Gíslason, áhuga­maður um kajak­róður.

Pétur, sem starfar hjá Grayline Iceland sem kerfis­stjóri, hefur stundað þetta áhugamál sitt lengi. Hann hefur margsinnis róið um hættulegt svæði við Ísland og erlendis. Til dæmis hefur hann nokkrum sinnum farið fyrir Horn á Vestfjörðum þar sem er eitthvað erfiðasta hafsvæði heims. Hann segist ekki hafa lent oft í háska. Það hafi þó stundum gefið á bátinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár