Lambakjötið undanþegið banni: „Ég vildi að ég ætti eitthvað í þessu“

Ágúst Andr­és­son, for­stöðu­maður kjöt­af­urða­stöðvar Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og kjör­ræð­is­maður Rúss­lands á Íslandi, segir að við­búið hafi verið að lamba­kjöt, ærkjöt, hrossa­kjöt og nið­ur­soðið fisk­meti yrði und­an­þegið inn­flutn­ings­bann­inu.

Lambakjötið undanþegið banni: „Ég vildi að ég ætti eitthvað í þessu“

Inn­flutn­ings­bannið til Rúss­lands tekur ekki til lamba­kjöts, ærkjöts, hrossa­kjöts og nið­ur­soð­ins fisk­metis í dósum. Þetta er nokkur léttir fyrir Kaup­fé­lag Skag­firð­inga sem verið hefur leið­andi í mark­aðs­setn­ingu á íslensku lamba­kjöti í Rúss­landi und­an­farin ár.

„Þetta kom ekki á óvart. Þarna er verið að færa Ísland og fleiri lönd yfir á bann­list­ann og þessar vörur eru ekki á list­anum yfir þær sem er bannað að flytja inn til Rúss­lands frá við­kom­andi löndum,“ segir Ágúst Andr­és­son, for­stöðu­maður kjöt­af­urða­stöðvar Kaup­fé­lags Skag­firð­inga í sam­tali við Stundina. „Ég held í raun og veru að það hafi verið hálf­gerð ósk­hyggja hjá útgerð­inni og íslenskum yfir­völdum að það yrði gerður nýr listi fyrir Ísland og hin löndin sem nú hafa bæst á list­ann hjá Rússum. Það stóð eflaust aldrei til.“

Þann 19. nóv­em­ber í fyrra var Ágúst skip­aður kjör­ræð­is­maður Rúss­lands, með ræð­is­mann­s­tign á Íslandi og aðsetur á Sauð­ár­króki. Aðspurður hvort honum hafi, sem kjör­ræð­is­manni, tek­ist að hafa áhrif á gang mála hlær hann og segir: „Nei, því miður, ég vildi að ég ætti eitt­hvað í þessu en þannig er það ekki.“ 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár