Kynna lok á glös kvenna til að hindra nauðganir: „Hvers konar samfélag er það?“

Söng­konan Þórunn Antonía og Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti kynntu sér­stakt pappa­lok fyrir drykki kvenna til að koma í veg fyrir að þeim verði byrlað nauðg­un­ar­lyfjum. Hildur Lilli­endahl spyr hvort skír­lífs­belti gegn nauðg­unum séu næst og Hildur Sverr­is­dóttir segir það ekki mega verða „konum að kenna“ ef þær setja ekki pappa­lok á drykk­inn sinn.

Kynna lok á glös kvenna til að hindra nauðganir: „Hvers konar samfélag er það?“
Verndari verk­efn­is­ins Guðni Th. Jóhann­es­son er vernd­ari verk­efn­is­ins sem snýst um að útvega pappa­lok fyrir drykki kvenna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Verkefni, sem Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti er vernd­ari fyrir, og snýst um að bjóða upp á pappa­lok fyrir konur sem eru úti að skemmta sér, svo þeim verði ekki byrluð ólyfjan, vekur upp umræður um hvort rétt sé að fólk breyti hegðun sinni til að koma í veg fyrir kyn­bundið ofbeldi.

Söng­konan Þórunn Antonía leiðir verk­efnið, en hún er kynn­ingar- og mark­aðs­stjóri tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Secret Solstice. Verk­efnið snýst um að prenta út 10 þús­und miða, sem hægt er að líma ofan á glös, þannig að ekk­ert utan­að­kom­andi kom­ist í glösin. „Örugg skemmtun á að vera í fyr­ir­rúmi í skemmt­ana­brans­anum og þannig er það svo sann­ar­lega hjá okkur á Secret Solstice,“ segir hún í sam­tali við frétta­vef­inn Vísi.

Hildur Sverr­is­dóttirVarar við því að for­send­urnar verði þær að konur eigi að passa upp á að vera ekki nauðgað.

Hildur Sverr­is­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist dást að virð­ing­ar­verðri hugsun, hlýju og sam­kennd sem felst í verk­efn­inu, en varar við því. „Konur eiga að geta skemmt sér án lím­miða yfir glas­inu sínu. Það má heldur ekki verða konu „að kenna“ ef henni eru byrluð lyf því hún hafði ekki lím­miða á drykknum.“

Þórunn seg­ist sjálf hafa orðið fyrir því að henni var byrluð ólyfjan, á skemmti­stað í London. Þá segir hún hug­mynd­ina hafa kviknað út frá sorg og van­mátt­ar­kennd stúlku sem er henni afar kær og var byrlað lyf á skemmti­stað og nauðgað. Einnig seg­ist Þórunn hafa fylgst með máli Birnu Brjáns­dóttur og hafa upp­lifað að henni hefði verið byrluð ólyfjan. „Það sem sló mig var að ég upp­lifði að henni hefði verið byrlað þegar ég horfði á mynd­skeið af henni sem kom í frétta­miðlum, kannski var það ímyndun í mér en það minnti mig á til­finn­ingu sem ég sjálf hafði upp­lifað þegar ég var yngri og fékk eitt­hvað út í drykk­inn minn á skemmti­stað í London. Þá var fyrsta til­finn­ing mín þyngsli í fót­unum, svo algjört minnis­leysi. Sem betur fer var mér bjargað. Vinur minn vann sem dyra­vörður á skemmti­stað þegar ókunnur maður var að bera mig út, sagð­ist vera kærast­inn minn. Hann var stöðv­aður og mér komið í örugga höfn. Ég var heppin að þarna var ein­hver með opin augun. En þetta snýst ekki um mig eða mína sögu, heldur allar þessar sögur sem maður heyrir aftur og aftur.“

„Hvers konar samfélag er það?“

Hildur Lilli­endahlMeð lokum fyrir drykki kvenna er verið að und­ir­gang­ast veru­leika sem sam­fé­lagið á ekki að sætta sig við.

Hildur Lilli­endahl er ein þeirra sem gagn­rýna á Facebook að átakið skuli snú­ast um ábyrgð kvenna á því að hindra nauðg­anir.

„Ég fagna því að loks­ins hafi ein­hver tekið af skarið og skellt fram hug­mynd að fýsískri lausn fyrir konur til að koma í veg fyrir að karlar nauðgi þeim. Af hverju að stoppa þarna? Hvað með bara skír­líf­is­belti? Eða að hafa Secret Solstice bara fyrir karla? Tón­listin á hátíð­inni er nán­ast bara eftir karla hvort sem er. Ég skil ekki hvað konur eru að gera utandyra. Vita þær ekki að þær eru að taka áhættu? Eða, með orðum hug­mynda­smiðs­ins: „Ábyrgðin er ekki bara þeirra sem drekka úr glas­inu heldur allra í kring.““

Fem­iníska vefritið knuz.is vekur einnig athygli á þeirri hlið hvað slíkar breyt­ingar á hegðun þýði fyrir sam­fé­lagið.

„Er þetta væn­legt til árang­urs? Hvers konar sam­fé­lag er það þegar konur neyð­ast til að líma yfir glösin sín til að forð­ast byrlun og nauðgun?“

Þórunn: Við þurfum að læsa húsum

Þórunn og for­set­innMeð lokin sem líma á yfir glös kvenna til að hindra lyfja­nauðg­anir.

Þórunn segir í sam­tali við Vísi að fólk eigi ekki að þurfa að ótt­ast að því verði byrljuð ólyfjan, en þannig sé það samt. „Við ættum auð­vitað ekk­ert að þurfa að vera að pæla í svona lög­uðu, það er í raun fárán­legt. En stað­reyndin er sú að það er fólk sem er að gera þetta af ásettu ráði sem er enn þá fárán­legra og flestum algjör­lega óskilj­an­legt. Rétt eins og við ættum ekk­ert að þurfa að læsa bílum eða heim­ilum okkar af ótta við að það brjót­ist ein­hver inn, en þurfum samt að gera það. Það er til fólk sem stelur og það er til fólk sem byrlar og nauðgar. Það er sorg­legt en satt.“

Árið 2015 skap­að­ist gagn­rýnin umræða um svokölluð kvenna­stæði í bíla­kjall­ara Hörpu. Þar höfðu verið mál­aðar sér­stakar merk­ingar á bíla­stæði nálægt inn­gangi tón­list­ar­húss­ins úr bíla­kjall­ar­anum á vel upp­lýstum svæðum og var ætl­unin að ein­ungis konur fengju að nota þau. Yfir­lýstur til­gangur var að koma í veg fyrir að ráð­ist yrði á konur í bíla­kjall­ar­anum, en gagn­rýnendur kvenna­stæð­anna töldu að með þessu væri verið að móta umhverfið með þeim hætti að setja konur í hlut­verk fórn­ar­lamba.

Árið 2005 var talið að grunur væri um fimm til sjö lyfja­nauðg­anir á ári. Árið 2010 áætl­uðu Stígamót í árskýrslu sinni að lyfja­nauðg­anir væru 17. 2013 var til­kynnt um 22 lyfja­nauðg­anir. Í árs­skýrslu Stíga­móta fyrir árið 2016 er fjöldi lyfja­nauð­gana met­inn 27, eða tæp­lega 11 pró­sent af öllum nauðg­unum. Þar af voru þrír karl­menn fórn­ar­lömbin.

Þórunn seg­ist í sam­tali við Vísi vera að reyna að skapa umtal með verk­efn­inu. „Fólk skemmtir sér betur ef það veit að það er gæsla og öryggi og kannski er þetta ágæt við­bót við það. Ég veit að þetta er kannski ekki lausn en þetta er hug­mynd og ég er að reyna að skapa umtal og vit­und­ar­vakn­ingu um að við eigum að passa hvert annað.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár