„Kraftaverkastrákurinn“ kominn af spítalanum

Hilmir Gauti Bjarna­son, dreng­ur­inn sem lenti í slys­inu í Reyk­dals­stílfu, er kom­inn heim í Hafn­ar­fjörð til ömmu sinnar. Bata­ferlið hefur gengið svo vel að hann Hilmir hefur verið kall­aður „krafta­verka­strák­ur­inn“ á spít­al­anum

„Kraftaverkastrákurinn“ kominn af spítalanum
Komin heim til ömmu Viðtal við fjöl­skyld­una verður birt í Kast­ljós­inu í kvöld. Móðir Hilmis segir það hafa verið ólýs­an­lega til­finn­ingu þegar hann vakn­aði eftir kæli­með­ferð­ina. Mynd: Skjáskot af RÚV

Hilmir Gauti Bjarna­son, dreng­ur­inn sem lenti í slys­inu í Reyk­dals­stílfu, er kom­inn í leyfi frá Land­spít­al­anum. Bata­ferlið hefur gengið vonum framar, svo vel að hann Hilmir hefur verið kall­aður „krafta­verka­strák­ur­inn“ á spít­al­anum. Hann hefur þó ekki verið útskrif­aður og verður áfram til eft­ir­lits og rann­sókna á spít­al­anum. Ekkert bendir til þess að hann muni bera skaða af slys­inu sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá spít­al­anum.

Hilmir og fjöl­skylda hans munu fá áfalla­hjálp til þess að vinna úr áfall­inu sem dundi á þann 15. apríl þegar Hilmir fest­ist í fossi við Reyk­dals­stíflu ásamt bróður sínum. Systir þeirra var á vett­vangi og gerði móður þeirra við­vart. Hún kom strax á stað­inn og tók þátt í björg­un­ar­til­raunum.

Mjög erf­iðar aðstæður voru á vett­vangi þar sem hver sek­únda skipti máli. End­ur­lífga þurfti báða dreng­ina, sá eldri komst til með­vit­undar á vett­vangi en halda þurfti Hilmi sof­andi í tvo sól­ar­hringa. Læknar beittu kæli­með­ferð, þar sem lík­ams­hita er haldið í 32-34 gráðum, til að draga úr líkum á heilaskaða. Það var síðan á föstu­dag sem Hilmir Gauti komst aftur til með­vit­undar. Nú seinnipart dags fékk hann síðan að fara heim í Hafn­ar­fjörð til ömmu sinnar þar sem fjöl­skyldan dvelur, en hún er búsett á Tálkna­firði.

Samkvæmt upp­lýsignum frá spít­al­anum varð margt til þess að allt gekk upp við björgun hans. Sér­sveitin var á æfingu rétt hjá vett­vangi slyss­ins og slökkvi­liðið var á nám­skeiði þar nærri. Allt hafi gengið upp og það skýri hvers vegna þetta fór svona vel.

Fjöl­skyldan verður í við­tali í Kast­ljósi í kvöld. Móðir hans segir það hafa verið ólýs­an­lega til­finn­ingu þegar Hilmir vakn­aði á föstu­dag. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár