Konan á Hverfisgötunni var „alltof ung“

Fram­kvæmda­stjóri ferða­þjón­ustu er hryggur yfir atburð­inum í gær en hann til­kynnti til lög­reglu konu í nær­buxum einum klæða á Hverf­is­götu. Hann telur að hún hafi verið rétt ríf­lega tví­tug. Ritari Snar­rót­ar­innar gagn­rýnir harð­lega bæði lög­reglu og fjöl­miðla.

Ritari Snarrótarinnar
Ritari Snar­rót­ar­innar Björgvin Mýrdal gagn­rýnir harð­lega bæði lög­reglu og fjöl­miðla vegna frétta­flutn­ings um kon­una. Mynd: Ásta Sif

Rúnar Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri ferða­stof­unnar Time Tours, seg­ist sorg­mæddur yfir atburð­inum á Hverf­is­götu í gær. Hann er sá sem til­kynnti til lög­reglu að nakin kona væri í ann­ar­legu ástandi á Hverf­is­göt­unni. Fréttir um að lög­regla hafi hand­tekið konu í nær­buxum einum klæða í gær­kvöldi hafa vakið nokkra athygli í dag en Morg­un­blaðið, Vísir og DV birtu frétt upp úr dag­bók lög­reglu um málið.

„Þetta var bara kona á slæmum stað í líf­inu. Hún var ung, alltof ung.“

Rúnar telur að konan hafi ekki verið eldri en 25 ára og segir hann að hún hafi óskað eftir að fara á geð­deild. Líkt og kom fram í fréttum í morgun var konan hins vegar vistuð í fanga­geymslu í nótt. „Þetta var bara kona á slæmum stað í líf­inu. Hún var ung, alltof ung,“ segir Rúnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár