Kjördæmapot og afskipti ráðherra kostuðu líklega tugi milljóna

Hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki á Hvamms­tanga fékk fjölda verk­efna án útboðs. Við­var­anir emb­ætt­is­manna og harka­leg álit Rík­is­end­ur­skoð­unar hundsuð. 180 millj­óna króna kostn­aður.

Kjördæmapot og afskipti ráðherra kostuðu líklega tugi milljóna
Einar K. Guð­finns­son Ráð­herr­ann gekk gegn áliti emb­ætt­is­manna og samdi við hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki í kjör­dæmi sínu. Mynd: pressphotos.biz

Ríkið hefur lagt út langt á annað hund­rað millj­ónir króna til tölvu­fyr­ir­tæk­is­ins Forsvars ehf. á Hvamms­tanga vegna hug­bún­að­ar­verk­efna. Aðeins eitt umræddra verk­efna er í notkun, tíma­bundið, og sum þeirra voru and­vanda fædd. Kastljós upp­lýsti þetta í gær. Þá kom fram að tveir þáver­andi ráð­herrar, Einar K. Guð­finns­son og Páll Pét­urs­son, höfðu bein afskipti af því að fyr­ir­tækið, sem var í þeirra kjör­dæmi, fengju umrædd verk­efni.

Tals­maður Forsvars, Garðar Jónsson, sat beggja vegna borðs­ins við gerð samn­inga um millj­óna­verk­efni. Hann var áður skrif­stofu­stjóri félags­mála­ráðu­neyt­is­ins en er í dag stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins. Flókin upp­skipti áttu sér stað þegar Garðar stofn­aði félagið Glax group og Glax software. Fram­sókn­ar­mað­ur­inn Elín Líndal stjórnar fyr­ir­tæk­inu í dag. Hann skýrði það sjálfur í sam­tali við Kastljós þannig að það hefði verið með vilja ráðu­neyt­anna. Samn­ingar Forsvars náðu meðal ann­ars til Barna­vernd­ar­stofu, Fiski­stofu, Verð­lags­stofu, Hag­stof­unnar og svæð­is­skrif­stofu fatl­aðra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár